Kjósarhreppur - Myndir
22. júlí 2010

Ljót aðkoma að Endurvinnsluplani Kjósarhrepps

    Það er ljót aðkoma að hliði Endurvinnsluplansins núna dag eftir dag.

 

Af hverju gerir fólk þetta?

Þekkir einhver ruslið sitt?

 Það er gönguhlið sem alltaf er opið og fólk þarf aðeins að ganga örfáa metra með ruslið sitt til að koma því í gám og þá þurfum við hin ekki að horfa uppá svona ófögnuð í okkar fallega umhverfi.

Tökum okkur á og gerum ekki svona aftur

 

 

endurvinnsluplan
- 23.7.2010 09:26:31 Það er rétt að aðkoman er ekki góð og ekki afsakanleg. Hver er mín reynsla:: Ég ætlaði að henda rusli-nokkrir pokar-en svæðið var lokað svo að ég fór til baka með ruslið og henti því í Reykjavík. Merkt var að svæðið væri bara opið - að mér fynnst mjög takmarkaðan tíma-sérstaklega yfir sumarið. Svæði sem merkt er að sé opið ákveðin tíma er í mínum huga lokað hinn tímann. Ekki minnist ég þess að nokkrar merkingar né ábendingar hafi verið um að hægt væri að afgreiða málið á staðnum utan þess tíma sem svæðið er auglýst opið. Endurvinnslumál eru í þróun hér á landi og verða þeir sem halda um stjórn þeirra að gera málið sem auðveldast fyrir notendur ætli menn að sjá þar góðan árangur. Á það við bæði um aðgengi,merkingar sem og flokkun sorps. Með góðri Kjósarkveðju,
Ágúst Guðmundsson Hlíð 43 ,Eilífsdal
Endurvinsluplan
Hvernig væri að hafa opið oftar í viku ? þetta er mjög lítill opnunnartími yfir sumarið
Endurvinnsluplan
- 28.7.2010 09:47:31 Veit ekki betur en að þetta sé aðallega heimilissorp, og finnst með ólíkindum að fólk geti ekki gengið 30 skref og fargað því. Það er hægt að ganga með heimilissorp innfyrir, þarf engar sérstakar merkingar til þess, með Kjósarkveðju,
Guðrún Björk, Lækjarbraut
Er þetta veitt Álit á opnunartímanum ?
ég er einn af þeim sem nota sorpmóttökuna við Meðalfell og jafnframt einn af þeim sem finnst undarlegt að það þurfi að loka stöðinn - en kannski er fólki ekki treystandi til að gera einfödlustu hluti nema undir eftirliti. Varðandi fréttina um slæma umgengni við hliðið þá trúi ég því varla að fólk geri þetta vegna leti að ganga með pokana að gámnum. Getur verið að þeir sem þetta gera séu með því að láta í ljós álit á opnunartíma - réttara sagt að stöðin sé nær alltaf lokuð ?
Einar H Einarsson, Hjarðarholtsvegi