17. ágúst 2010
Keppni á beinni braut.
Hestamannafélagið Adam heldur keppni á beinni braut niður á Hvalfjarðareyri, laugardaginn 21 n.k. Fyrirhugað var að halda keppnina við Félagsgarð, en þar sem svæðið er í útleigu á sama tíma, ákvað stjórn Adams að færa keppnina á Eyrina. Það kom þó til máls að fresta keppninni, en eftir nákvæma athugun og djúpar umræður var ákveðið að standa við áður ákveðna dagsetningu. Vitað era ð flestir færustu knapar landsvæðisins milli Kiðafellsár og Botnsár hafa æft stíft fyrir þessa keppni. LH getur frestað LM en Adam frestar ekki boðuðum uppákomum.
Keppt verður í A-og B-flokki auk gæðingatölts ( hægt tölt, hraðabreytingar og yfirferð).
Þátttökugjald kr. 1000 p. grein.
Keppni hefst kl. 13:30 – Skrá þarf í síðasta lagi föstudaginn 20. Skráning í s: 848-7100 og 895-7745, fínt að senda SMS líka, eða með pósti á bjossi@icelandic-horses.is
Spáin er góð – þar verður fjör í fjörunni! Finnur einhver Villa í fjörunni? Kjósverjar, Dolluna heim! Látum ekki villta tryllta Villa taka okkur í reiðkennslu, aftur. Mætir Reiðmaðurinn? Mætir Bjarni á Þorláksstöðum?
Mætir einhver?
Stjórn Adams
p.s. Fallegasta parið verðlaunað.