Kjósarhreppur - Myndir
14. júní 2011

Kjósarstofa opnar

Opnunarhátíð laugardaginn 25. júní kl. 15

Stjórn og varastjórn Kjósarstofu
Kjósarstofa er að taka til starfa þessa dagana. Um er að ræða áhugafélag um að efla samfélagið í Kjós og miðla upplýsingum um sögu og náttúru svæðisins og hefur stofan aðsetur í Ásgarði. Opnunarhátíð Kjósarstofu verður laugardaginn 25. júní kl. 15. Sýning um Sól í Hvalfirði verður opnuð í Ásgarði ásamt nýrri upplýsingamiðstöð þar. Að því búnu verður samverustund í anda Jónsmessunnar í Ólaskógi, Stekkjarflöt þar sem sagðar verða sögur af huldum vættum og tónlist flutt. Fólk er hvatt til að rifja upp sögur af huldum vættum í sveitinni og segja þær við þetta tilefni. Dagskráin verður kynnt nánar innan skamms á vefnum www.kjos.is.

 

Samkeppni um merki Kjósarstofu                                               Kjósarstofa efnir til samkeppni um merki félagsins. Tillögum skal skila til Kjósarstofu í Ásgarði í tveimur útfærslum, í lit og í svart/hvítu, sett upp á arkir í stærðinni A4. Tillögurnar skal senda í umslagi, merktar með dulnefni. Nafn höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi, merktu með sama auðkenni. Tillögunum skal jafnframt fylgja lýsing á merkingu þeirra og meginhugmyndum. Verðlaun í anda Kjósarinnar í boði.

Gert er ráð fyrir að sýning verði haldin á innsendum tillögum á Kátt í Kjós, 16. júlí n.k.  Skilafrestur er til og með 10. júlí 2011.

 

Handverk

Kjósarstofa óskar eftir að hafa handverk í umboðssölu í Ásgarði. Einnig er óskað eftir samstarfi við þá sem hafa áhuga á að þróa minjagripi sem tengjast Kjósinni sérstaklega. Ráðgjafi hjá Nýsköpunarmiðstöð mun hafa kynningarfund í sumar um þróun handverks.

 

Leiðsagnir - kynning á gönguleiðum 29. júní kl. 20

Kjósarstofa óskar eftir samstarfi við ferðaskipuleggjendur og leiðsögumenn og sem hafa áhuga á að sjá um leiðsagnir fyrir ferðafólk, sumarbústaðaeigendur eða íbúa í Kjósinni. Reynir Ingibjartsson sem nýlega gaf út bókina Gönguleiðir í Hvalfirði verður með kynningu á bókinni miðvikudagskvöldið 29. júní kl. 20 í Ásgarði. Áhugafólk um leiðsögu er sérstaklega hvatt til að mæta og kynna sér ferðamöguleikana í Kjós.

 

Ljósmyndanámskeið                                                                     

Kjósarstofa hefur fengið hinn þekkta ljósmyndara Ragnar Th. Sigurðsson til að halda ljósmyndanámskeið í sumar. Námskeiðið verður tvískipt: Fyrst þriðjudagskvöldið 7. júlí kl 20, þar sem farið verður yfir grunnatriði í landslagsljósmyndun með stafrænni vél og eftirvinnslu mynda. Seinna kvöldið verður í byrjun september og verður þá farið yfir myndir sem þátttakendur hafa tekið á undanförnum tveimur mánuðum og valdar myndir til að setja á sýningu í Ásgarði á vegum Kjósarstofu. Þátttökugjald er kr. 10.000 og óskast þátttökubeiðnir sendar til Kjósarstofu sem fyrst á netfangið kjosarstofa@kjos.is

 

 

Ljósmyndanámskeiðið þri. 5. júlí
- 14.6.2011 21:55:17 Ljósmyndanámskeiðið verður þriðjudagskvöldið 5. júlí (ekki þann 7.) ef næg þátttaka fæst. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig fyrir mánaðamót á netfangið kjosarstofa@kjos.is
f/h Kjósarstofu Ólafur J. Engilbertsson