Kjósarhreppur - Myndir
10. október 2011

Einn rólegur í sunnudagssteikinni

Stæðilegur hvítur refur var á ferð um Miðdalinn í gærdag og fann þar hina bestu sunnudagsmáltíð. 

Þarna er hann sestur að mat sínum og var hinn rólegasti góða stund, hélt áfram að éta eins og ekkert hefði í skorist og nógu lengi til þess að hægt væri ná í myndavélina og taka af honum nokkrar myndir.

 

 

- 16.10.2011 22:56:24 Sennilega eru ekki allir sáttir við refi. Skiljanlegt er að mörgum bændum þyki hann óvelkominn enda kann hann vel að meta lambakjötið sem er bæði bragðgott og alíslensk fæða. Bændur vilja enga samkeppni á þeirra kostynað! En af tvennu illu er refurinn skárri en minkurinn. Sjálfum finnst mér gaman af refum, sá síðast yrðlinga 3 saman hlaupa yfir hrinveginn fyrir austan í sumar. Yrðlingur var haldinn á Möðruvöllum og eins hafa yrðlingar verið aldir í Drangsnesi norður í Strandasýslu. Þetta gengur þokkalega þangað til náttúran kallar og þá hverfa þeir á vit ævintýra og ásta við gagnkvæma kynið. Verðum við annars ekki að læra að líta á ref eins og hvern annan íbúa landsins? Við getum bætt vörslu með sauðfé t.d. með auknum beitiskógum nær bæjum og þar með að taka minni áhættu að hafa fé í afréttum. Góðar stundir. Guðjón Jensson Mosfellsbæ
Einn rólegur í sunnudagssteikinni
Jú rebbi á rétt á að lifa hér eins og við. En kannski verðum við aðeins að halda stofninum niðri uppá fuglalíf og búfénað. Þegar þrengir um í búi oft vegna þess að það eru orðnir of margir refir á svæðinu þá leitar hann í fé.
Bjartmar Sigurdsson