20. desember 2011
Skötuveislan á föstudaginn 23. desember í Félagsgarði kl 13
Minni íbúa á að panta þarf í veisluna tímanlega, vegna aðfangaöflunar.
Á boðstólum verður tindabikkja vel kæst að vestan, skata, saltfiskur, sérbakað rúgbrauð að hætti Steinunnar á Meðalfelli og annað ágætt meðlæti.
Aðeins verður boðið upp á vatn til að renna skötunni niður með. Gestir er því beðnir um að hafa drykkjarföng með ef þeir ef þeir kjósa að drekka eitthvað annað en blákalt íslenskt vatnið.
- 23.12.2011 20:44:41
Frábært í alla staði hjá sveitarstjórn að bjóða íbúum í skötu. Kærar þakkir fyrir okkur.
Bergþóra