5. janúar 2012
Þrettándabrenna við Félagsgarð
Haldin verður hin árlega þrettándabrenna við Félagsgarð í Kjós á morgun en veðurspáin er all góð. Fólk er hvatt til að mæta við brennuna og taka börnin með. Kveikt verður í brennunni kl 20:30 og flugeldasýning hefst á sama tíma. Jólasveinarnir eru nú flestir á leið til síns heima enda þrettándi dagur jóla. Einn hefur lofað koma við á leið sinni heim og er aldrei að vita nema hann hafi einhverja restar handa börnunum í pokahornum sínum.
Kvenfélagið mun bjóða uppá heitt kákó og meðlæti við hæfi
Gott blessað góðaveðrið!!!!
- 6.1.2012 22:53:54
Fór á brennuna,,fannst hún frekar smá:))ætlaði þá að hafa tal af ,,sveinka,,en hann lét ekki sjá sig.Hitti þó Einar í Blönduholti og hann sprengdi fyrir mig nokkrar tertur sem urðu afgangs hjá honum á gamlárskvöld. Takk fyrir mig. Raggi á Bollastöðum.
ragnar upplýsingar um Brennu ekki gott.
ég kom úr Reykjavík til að vera með á brennuni
engin brenna og ekki einusinni búið að safna í brennu þrátt fyrir tilkynningu þar um á kjós.is
frekar lélegt að mér finnst ,
sumarbústaðareigandi Kjós