25. janúar 2012
Snjóþyngsli og umhleypingar í Kjós
Við íbúar í Kjós höfum verið heppin með veður undanfarna vetur, lítil snjóþyngsli, en nú bregður öðru við, greinileg kominn tími að Kjósverjar fái að kynnast alvöru "vetri konungi" þetta árið.
Hér í sveit byrjaði að snjóa um 24. nóvember og hafa verið nánast stanslausir umhleypingar síðan, mest þó bætt við snjóinn.
Kjósarhreppur hefur staðið myndarlega að mokstri vega í sveitarfélaginu, en margir íbúar stunda vinnu frá heimili sínu, börn þurfa að komast í skóla, mjólkurbíllinn að komast til að ná í mjólkina, svo ekki sé minnst á póstinn.
bílastæði að sumarbústöðum ófær m öllu vegna snjóruðnings á flekkudalsvegi
- 27.1.2012 16:41:01
Græni traktorinn frá Hállsi er mjög drugur á stofnbrautum en í staðin lokast allveg heimreiðarnar að sumarbústöðunum
hvað erum við Sumarbústaðaeigendur að fá fyrir fasteignaskattin sem að við greiðum af bústöðunum okkar ?
sumarbústaðareigandi í kjós
Minna en ekkert
Það er til skammar hvernig sveitarfélagið stendur sig gagnvart sumarbústaðaeigendum. Þeir fá minna en ekkert fyrir fasteignagjöldin. Þó er mokað á Flekkudalsvegi. Fyrr mun væntanlega frjósa í helvíti áður en sveitarfélagið sér sóma sinn í að greiða sumarbústaðaeigendum á jaðarsvæðum, s.s. hér í Eyjafelli og víðar, götuna.
Eiríkur St. Eiríksson