Fréttir
Byggingarfulltrúi Kjósarhrepps
	<description>Byggingar-og skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps verður til viðtals á skrifstofum hreppsins mánudaginn 20, maí frá kl 10-15</description>
Hreppsnefnd Kjósarhrepps fagnar.
	<description>Hreppsnefnd Kjósarhrepps fagnar úttektar Faxaflóahafna, sem var gerð á stöðu umhverfismála á Grundartanga og næsta nágrennis. Þótt niðurstaða rannsóknanna hafi leitt í ljós og staðfest grun heimamanna um mikið álag mengandi efna frá verksmiðjusvæðinu þá er það jákvætt að niðurstaða liggi fyrir. Hreppsnefnd lítur svo á að ákveðnum botni hafi verið náð. Með yfirlýsingu Faxaflóahafna um að ekki geti orðið að frekari uppbyggingu mengandi starfsemi á Grundartanga er ákveðnum vendipunkti náð og hér eftir horfi til betra ástands. Í því ljósi lýsir hreppsnefnd Kjósarhrepps yfir eindregnum vilja sínum til að vinna með aðilum til að draga markvist úr útblæstri mengandi efna frá verksmiðjusvæðinu með það að markmiði að íbúar og atvinnurekendur í Hvalfirði geti við unað.</description>
Ferming í Reynivallakirkju
	<description>Fermingarmessa verður í Reynivallakirkju sunnudaginn 5. maí kl. 14. 
Fermd verða: Kári Haraldsson, Lækjarbraut 2, Kjós, 276 Mosfellsbær og Anna Lísa Ólafsdóttir, Þrándarstöðum, Kjós, 276 Mosfellsbær.
Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.</description>
Störf hjá Kjósarhrepp í sumar.
	<description>Vinna fyrir námsmenn
Vinnumálastofnun hefur úthlutað til Kjósarhrepps þremur störfum fyrir námsmenn 18 ára og eldri nú í sumar í tvo mánuði.  Vinnan hefst 3. júní og lýkur 31. júlí  Það er skilyrði að viðkomandi námsmaður hafi verið í námi sl vetur og sé skráður í nám hjá viðurkenndri menntastofnun næsta haust. Vinnutími verður frá kl. 09-16,  mánudaga-föstudaga.  Ath. aðeins er um þrjú störf að ræða.
Unglingavinnan
Unglingavinnan fyrir aldurshópinn 14-16 ára verður starfrækt í sumar með hefðbundnum hætti. Hún mun hefjast 18.júní og vera til 18. júlí báðir dagar meðtaldir. Mánudaga-fimmtudaga frá kl 10-16. Möguleiki á aukavinnu í kringum Kátt í Kjós.
Helstu verkefnin verða: sláttur, hirðing og hreinsun í kringum Ásgarð og Félagsgarð. Rusl tínt meðfram vegum, strandlengjum og fl.
Umsóknareyðublöð má sækja hér fyrir námsmenn og  hér fyrir unglingavinnuna. 
 Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skila inn umsókn á skrifstofu Kjósarhrepps fyrir 20. maí 2013 eða senda í tölvupósti á oddviti@kjos.is</description>
Fréttir af hitaveitu
	<description>Þeir sem ætluðu að koma niður dælunni í borholuna við Möðruvelli í síðustu viku áttu fótum sínum fjör að launa þegar þeir opnuðu holuna. Krafturinn á vatninu var svo mikill að gosið var að minnsta 12m upp í loftið og í byrjun var vatnshraðinn  50-60 sek/l og fór síðan upp í 100 sek/l,  af ca 80 gráðu heitu vatni. Ekki reyndist hægt að koma dælunni niður í þetta sinn, en til stóð að þrýstimæla holuna. 
Úlfar Harðarson helsti ráðgjafi Kjósarhrepps um hitaveitumál taldi réttast að hafa holuna opna yfir síðustu helgi og sjá til hver staðan yrði. Ákveðið var að mæla holuna á hverjum morgni og hefur rennslið minnkað um 2 sek/l á sólarhring. Í morgun var rennslið 16 sek/l en til að hægt sé að koma dælunni niður þarf rennslið nánast að hætta.
Stóra  spurning var samt sem áður hvort um jákvætt eða neikvætt vandamál væri um að ræða.
Þær einu sem njóta heita vatnsins úr holunni við Möðruvelli enn sem komið er, eru álftirnar, en þær njóta þess að liggja í volgum læknum og baða sig  í kuldanum.</description>
Kjörsókn góð í Kjósinni
	<description>Góð kjörsókn var í Kjósinni sl. laugardag eða um 87%. 149 af 172 sem voru á kjörskrá nýttu sér þann rétt að hafa áhrif á val þeirra sem koma til með að sitja Alþingi næsta kjörtímabil. Frændurnir Kristján Oddsson og Gísli Gíslason tóku fram sparibílana og mættu í þeim á kjörstað</description>
Framboðsfundur í Félagsgarði í kvöld
	<description>Boðað er til framboðsfundar í Félagsgarði í Kjós í kvöld, 25. apríl kl 20:00 vegna kosninga til Alþingis þann 27. apríl. Sex stærstu framboðunum var boðið að senda fulltrúa á fundinn eða þeim sem skoðanakannanir hafa sýnt að nái inn mönnum á þing. Nær öll hafa sýnt áhuga og ætla að mæta.
Boðið er uppá að hver fulltrúi hafi framsögu í ca 5-10 mínútur og taki síðan á móti spurningum úr sal.
Málefnin sem brenna á Kjósverjum eru meðal annars, staða íslensks landbúnaðar, samgöngu- og fjarskiptamál  og hitaveita í Kjósarhreppi.
Íbúar og aðrir sem láta sig málin varða eru hvattir til að mæta á fundinn, láta álit sitt í ljós og beina spurningum og heyra  loforð frambjóðenda.</description>
Stóriðjustefnan og Hvalfjörður
	<description>Stóriðjustefnan og Hvalfjörður
Grein eftir Ragnheiði Þorgrímsdóttur   Sjá hér</description>
Framboðsfundur Vinstri-græna í Kaffi Kjós í kvöld
	<description>Opinn samræðufundur Vg. vegna komandi alþingiskosninga verður í Kaffi Kjós þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:00
Efstu frambjóðendur hreyfingarinnar mæta á fundinn og kynna stefnumál sín,fara yfir liðið kjörtímabil og ræða staðbundin verkefni.
Allir velkomnir</description>
Kjörfundur frá kl 12-20 í Ásgarði,  27. apríl
	<description>Kosið verður til Alþingis  í Ásgarði þann  27. apríl 2013. Opið verður frá kl. 12:00   til  20:00. 
Á kjörskrá eru 172,  konur eru 76 og karlar 96. 
Sími hjá kjörstjórn er 566-71-00 og 861-4701. 
Kvenfélagið mun sjá um kaffiveitingar á milli kl 13:00 og 17:00
Stefnt er að framboðsfundur verði í Félagsgarði fimmtudagskvöldið 25. apríl kl 20 ef framboðin hafa áhuga á að senda fulltrúa sinn í Kjósina. Nánar síðar</description>
Lóan er komin í Kjósina
	<description>Lóan er komin í Kjósina að kveða burt snjóinn. Sást á Valdastöðum.</description>
Breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins
	<description>Haldinn verður opinn kynningarfundur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, kl 16:30,  þann 18. apríl í Salnum Kópavogi.  Kynntar verða tillögur að breytingum sem tilkomnar eru vegna yfirstandandi endurskoðunar aðildarsveitarfélaga á aðalskipulagi.
Kynning þessi fer fram áður en breytingartillögur eru teknar til afgreiðslu hjá svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórnum.
Frá Veiðikortinu
Skattskrá 2012
	<description>Skattskrá 2012 og framlagningarskrá virðisaukaskatts 2011 liggja frammi á skrifstofu Kjósarhrepps frá 15. til 26. apríl að báðum dögum meðtöldum</description>
Kjörskrá
	<description>Kjörskrá Kjósarhrepps vegna Alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins. Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl 10-16.
Einnig er hægt að fara inn á kosningavef Innanríkisráðuneytisins og kanna upplýsinga um skráningu á kjörstað.
Kjörskrár miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, eða 23. mars 2013.</description>
Bókasafnið í Ásgarði
	<description>Bókasafnið verður opið á miðvikudagskvöldið 17. apríl  frá kl. 20-22  í síðasta sinn á þessum vetri. Þeir sem hafa að láni bækur frá safninu eru vinsamlegast beðnir um að skila þeim þá.</description>
Niðurstöður umhverfisvöktunar í Hvalfirði eru nú aðgengilegar – skýrslur fást í Matarbúrinu!
	<description>Þeir sem vilja kynna sér niðurstöður umhverfisvöktunar iðjuveranna á Grundartanga, geta nálgast skýrslur nú um helgina, 12.-14. apríl, í Matarbúrinu á Hálsi. Frá og með mánudeginum 15. apríl verða skýrslurnar svo fáanlegar á skrifstofu Kjósarhrepps á meðan birgðir endast.
Opinn kynningarfundur um niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga, rekstrarárið 2012.
Norðurál og Elkem Ísland standa fyrir kynningarfundi um niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga fyrir hagsmunaaðila og almenning. Fundurinn verður haldinn á Hótel Glym, Hvalfjarðarströnd, miðvikudaginn 17. apríl n.k. og hefst klukkan 13.00.
Fulltrúar Norðuráls og Elkem Ísland flytja erindi fyrirtækjanna en Eva Yngvadóttir frá verkfræðistofunni Eflu flytur erindi um niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins við Grundartanga, árið 2012. Í fyrirlestri Evu verða kynntar niðurstöður á mælingum í andrúmslofti, ferskvatni, lífríki sjávar, gróðri og grasbítum. Starfsmenn beggja fyrirtækja, höfundar sérfræðiskýrslna og fulltrúar verkfræðistofunnar Eflu, verða viðstaddir allar kynningarnar til að svara spurningum sem upp kunna að koma.
Íbúar Kjósarinnar eru hvattir til að kynna sér efni skýrslunnar fyrir kynningarfund iðjuveranna í næstu viku og fjölmenna á fundinn.
Umhverfis-, náttúru- og landbúnaðarnefnd.</description>
Aðalfundur Búnaðarsambands Kjalarnesþings 2013
	<description>Aðalfundur BSK verður haldinn í Ásgarði Kjós miðvikudaginn 17. Apríl  kl. 20:00
Dagskrá
Skýrsla stjórnar fyrir liðið ár 
Reikningar félagsins 
Kosningar 
Tillaga stjórnar um að selja húseign félagsins Þverholt 3 Mosfellsbæ 
Samningur við Bú- vest  um áframhaldandi þjónustu við svæði BSK eftir stofnun RLM
Önnur mál 
Stjórn BSK</description>
Bókasafnið opið á morgun
	<description>Bókasafnið í Ásgarði verður opið á morgun, miðvikudaginn 3. apríl frá kl 20-22.</description>
Kæru bændur og búalið!
	<description>Mjólkursamlag Kjalarnesþings, Búnaðarfélag Kjósarhrepps og Búnaðarfélag Hvalfjarðar höfðu ráðgert að fara í Vorferð miðvikudaginn 27 mars n.k.          En af óviðráðanlegum orsökum verður að fresta þeirri ferð til laugardagsins 30. mars. Lokafrestur til að skrá sig framlengist því til miðvikudagsins 27 mars,.</description>