Fréttir
Kvennareiðin  í Kjósinni  2013
	<description>Hin árlega kvennareið í Kjósinni verður  föstudaginn 21. Júní .  Lagt verður af stað frá Miðdal kl 18:30  stundvíslega og riðið inn í Flekkudal  og athugað hvort ekki er til eitthvað gott  á grillinu þar.  Síðan er spurning er um keppni í bjórtölti  eða einhverju öðru skemmtilegu. Gaman væri   að þema hópsins í klæðaburði verði fornaldarreiðfatnaður. Nánar auglýst síðan</description>
Landsmót UMFÍ á Selfossi  4.-7. júlí- auglýst eftir þátttakendum úr Kjós.
	<description>UMSK er að leita í Kjósarhrepp eftir keppenda í dráttarvélaakstri á Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi í byrjun júlí nú í sumar. 
Einn Kjósverji hefur sigrað með yfirburðum í þessari grein á landsmót UMFÍ, árið 2001 en það var Finnur Pétursson Káranesi.  Sjá grein tekin af Patreksfjordur.is.
Einn keppandi HHF, Finnur Pétursson frá Tálknafirði ( Káranesi) keppti í dráttavélaakstri og má segja að hann hafi komið, séð og sigrað, því hann gerði sér lítið fyrir og sigraði með nokkrum yfirburðum og er Landsmótsmeistari. Finnur fékk 116,5 stig og næsti keppandi var með 112,5 stig. Finnur sýndi með framtaki sínu að hægt er að ná árangri með vilja og áræðni. Hann sá sjálfur um allan undirbúning fyrir keppnina. Fyrir þennan árangur Finns fékk HHF 10 stig og lenti þar með í 14. sæti af 22. í stigakeppni héraðssambanda á landsmótinu. (Tekið af  Patreksfjordur.is, birtist 20.07.2001)
Er ekki komin tími Kjósverjar góðir að slá þetta met eða að minnsta kosti að jafna.
Skráningar  þurfa að berast eigi síðar en á hádegi mánudaginn 24. Júní. Best er að hafa samband við Valdimar Gunnarsson framkvæmdastjóra  UMSK  sem fyrst í s. 8948502 eða á netfangið valdimarg@umsk.is</description>
Kátt í Kjós 20. júlí  2013
	<description>Undirbúningsfundur fyrir Kátt í Kjós 2013-þriðjudaginn 18. júní, kl. 20 í Ásgarði
Sveitahátíðin Kátt í Kjós verður haldin í sjöunda sinn laugardaginn 20. júlí nk. Hátíðin er kærkominn vettvangur fyrir menningu Kjósverja, menningu með Kjósverjum og menningu fyrir Kjósverja. Hún er byggð upp á mörgum smáum viðburðum og hefur það ekki síður að markmiði að efla umræðu um sveitamenningu í samfélaginu, fjölmiðlum og á torgum.
Allir sem láta sig Kjósar-menningu varða og eru tilbúnir til að viðhalda kátínu í Kjósinni eru boðnir á sameiginlegan undirbúningsfund þriðjudag 18. júní 2013, kl. 20:00-21:00 í Ásgarði.  
Hlökkum til að sjá sem flesta og fá fullt af hugmyndum til viðbótar.
 Stjórn Kjósarstofu í samvinnu við Kjósarhrepp</description>
Heitavatnsöflun í Kjós
	<description>Hér má sjá nýjasta minnismiðann frá þeim Þórólfi Hafstað og Kristjáni Sæmundssyni hjá ÍSOR um vatnsöflun fyrir hitaveitu  Kjósarhrepps.    Sjá hér</description>
Kvennahlaup ÍSÍ
	<description>Kvennahlaup ÍSÍ verður 8.júní 2013   hlaupið verður frá Kaffi Kjós kl. 14,00
skráning hafin í Kaffi Kjós   Bolirnir komnir, endilega skrá sig sem allra fyrst.
   FSM  - Kaffi Kjós</description>
Myndarlegar gjafir Kjósverja til Landsbjargar
	<description>Kjósverjar gáfu myndarlega til söfnunar Landsbjargar sl föstudagskvöld. En þegar heyrðist í Þóru Arnórsdóttur að kvenfélagskonurnar hennar í Kjósinni hefður gefið kr. 50.000.- þá gat Kjósarhreppur ekki verið minni og gaf einnig kr. 50.000.- til söfnunarinnar.</description>
Plastgámar verða losaðir á föstudaginn
	<description>Plastgámarnir verða losaðir á föstudaginn 7. júní.</description>
Aðalfundur Veiðifélags Kjósarhrepps
	<description>Aðalfundur Veiðifélags Kjósarhrepps var haldinn 16. maí sl. Um venjuleg aðafundarstörf var að ræða. 
Stjórn næsta árs skipa þeir: Ólafur Þór Ólafsson formaður, Hreiðar Grímsson ritari, Sigurþór Gíslason gjaldkeri, Guðmundur Magnússon og Óðinn Elísson meðstjórnendur. Eins og sjá má er greinilega engin jafnréttisstefna hjá þessu félagi, engin kona í stjórn.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2012 voru lagðir fram og  samþykktir, en tekjur ársins voru kr.51.717.323.- og gjöldin kr 52.058.259.-  Eignir félagsins samkvæmt ársreikningi kr.79.133.328.-
Töluverðar voru áhyggjur fundarmanna vegna vatnsleysis í Laxánni undanfarin ár en horfðu samt vongóðir til mikilla snjóalaga í Eyjadal, Flekkudal og Eilífsdal -aukið vatn í ánni í sumar.</description>
Gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis
	<description>Sjóðheita gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins til upplýsingar má skoða hér</description>
Hreinsun rotþróa
	<description>Áætlað er að byrja á hreinsun rotþróa í næstu viku. Byrjað verður á sumarhúsum í Eilífsdal síðan farið  í Háls ðg Hvammshverfin</description>
Staða hitaveitumála í Kjósarhreppi
	<description>Fundur var haldinn sl þriðjudag í  hreppsnefnd Kjósarhrepps ásamt orkunefnd og þeim Kristjáni Sæmundssyni og Þórólfi Hafstað frá ÍSOR og Úlfari Harðarsyni frá Flúðum.
Ástæða fundarins var að fara yfir stöðu mála vegna borholunnar við Möðruvelli en í ljós kom þegar dæling loks hófst að  vatnsmagn var ekki eins mikið og menn gerðu ráð fyrir. Veitan þarf 40s/l en vatnsmagnið er núna stöðugt við 20s/l sem alls ekki er ásættanlegt. Staðan er sú núna að dæla þarf í ca 2-3 mánuð til að sjá til hvort einhverjar breytingar verði á vatnsmagni. Ef ekki verður aukning á vatni þá standa menn frammi fyrir því að dýpka núverandi holu í ca 1400 metra en hún er um 820,  bora nýja eða ??? 
Hér er minnisblað til kynningar frá Ísor um dælinguna úr Möðruvallaholunni</description>
Byggingarfulltrúi Kjósarhrepps
	<description>Byggingar-og skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps verður til viðtals á skrifstofum hreppsins mánudaginn 20, maí frá kl 10-15</description>
Hreppsnefnd Kjósarhrepps fagnar.
	<description>Hreppsnefnd Kjósarhrepps fagnar úttektar Faxaflóahafna, sem var gerð á stöðu umhverfismála á Grundartanga og næsta nágrennis. Þótt niðurstaða rannsóknanna hafi leitt í ljós og staðfest grun heimamanna um mikið álag mengandi efna frá verksmiðjusvæðinu þá er það jákvætt að niðurstaða liggi fyrir. Hreppsnefnd lítur svo á að ákveðnum botni hafi verið náð. Með yfirlýsingu Faxaflóahafna um að ekki geti orðið að frekari uppbyggingu mengandi starfsemi á Grundartanga er ákveðnum vendipunkti náð og hér eftir horfi til betra ástands. Í því ljósi lýsir hreppsnefnd Kjósarhrepps yfir eindregnum vilja sínum til að vinna með aðilum til að draga markvist úr útblæstri mengandi efna frá verksmiðjusvæðinu með það að markmiði að íbúar og atvinnurekendur í Hvalfirði geti við unað.</description>
Ferming í Reynivallakirkju
	<description>Fermingarmessa verður í Reynivallakirkju sunnudaginn 5. maí kl. 14. 
Fermd verða: Kári Haraldsson, Lækjarbraut 2, Kjós, 276 Mosfellsbær og Anna Lísa Ólafsdóttir, Þrándarstöðum, Kjós, 276 Mosfellsbær.
Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.</description>
Störf hjá Kjósarhrepp í sumar.
	<description>Vinna fyrir námsmenn
Vinnumálastofnun hefur úthlutað til Kjósarhrepps þremur störfum fyrir námsmenn 18 ára og eldri nú í sumar í tvo mánuði.  Vinnan hefst 3. júní og lýkur 31. júlí  Það er skilyrði að viðkomandi námsmaður hafi verið í námi sl vetur og sé skráður í nám hjá viðurkenndri menntastofnun næsta haust. Vinnutími verður frá kl. 09-16,  mánudaga-föstudaga.  Ath. aðeins er um þrjú störf að ræða.
Unglingavinnan
Unglingavinnan fyrir aldurshópinn 14-16 ára verður starfrækt í sumar með hefðbundnum hætti. Hún mun hefjast 18.júní og vera til 18. júlí báðir dagar meðtaldir. Mánudaga-fimmtudaga frá kl 10-16. Möguleiki á aukavinnu í kringum Kátt í Kjós.
Helstu verkefnin verða: sláttur, hirðing og hreinsun í kringum Ásgarð og Félagsgarð. Rusl tínt meðfram vegum, strandlengjum og fl.
Umsóknareyðublöð má sækja hér fyrir námsmenn og  hér fyrir unglingavinnuna. 
 Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skila inn umsókn á skrifstofu Kjósarhrepps fyrir 20. maí 2013 eða senda í tölvupósti á oddviti@kjos.is</description>
Fréttir af hitaveitu
	<description>Þeir sem ætluðu að koma niður dælunni í borholuna við Möðruvelli í síðustu viku áttu fótum sínum fjör að launa þegar þeir opnuðu holuna. Krafturinn á vatninu var svo mikill að gosið var að minnsta 12m upp í loftið og í byrjun var vatnshraðinn  50-60 sek/l og fór síðan upp í 100 sek/l,  af ca 80 gráðu heitu vatni. Ekki reyndist hægt að koma dælunni niður í þetta sinn, en til stóð að þrýstimæla holuna. 
Úlfar Harðarson helsti ráðgjafi Kjósarhrepps um hitaveitumál taldi réttast að hafa holuna opna yfir síðustu helgi og sjá til hver staðan yrði. Ákveðið var að mæla holuna á hverjum morgni og hefur rennslið minnkað um 2 sek/l á sólarhring. Í morgun var rennslið 16 sek/l en til að hægt sé að koma dælunni niður þarf rennslið nánast að hætta.
Stóra  spurning var samt sem áður hvort um jákvætt eða neikvætt vandamál væri um að ræða.
Þær einu sem njóta heita vatnsins úr holunni við Möðruvelli enn sem komið er, eru álftirnar, en þær njóta þess að liggja í volgum læknum og baða sig  í kuldanum.</description>
Kjörsókn góð í Kjósinni
	<description>Góð kjörsókn var í Kjósinni sl. laugardag eða um 87%. 149 af 172 sem voru á kjörskrá nýttu sér þann rétt að hafa áhrif á val þeirra sem koma til með að sitja Alþingi næsta kjörtímabil. Frændurnir Kristján Oddsson og Gísli Gíslason tóku fram sparibílana og mættu í þeim á kjörstað</description>
Framboðsfundur í Félagsgarði í kvöld
	<description>Boðað er til framboðsfundar í Félagsgarði í Kjós í kvöld, 25. apríl kl 20:00 vegna kosninga til Alþingis þann 27. apríl. Sex stærstu framboðunum var boðið að senda fulltrúa á fundinn eða þeim sem skoðanakannanir hafa sýnt að nái inn mönnum á þing. Nær öll hafa sýnt áhuga og ætla að mæta.
Boðið er uppá að hver fulltrúi hafi framsögu í ca 5-10 mínútur og taki síðan á móti spurningum úr sal.
Málefnin sem brenna á Kjósverjum eru meðal annars, staða íslensks landbúnaðar, samgöngu- og fjarskiptamál  og hitaveita í Kjósarhreppi.
Íbúar og aðrir sem láta sig málin varða eru hvattir til að mæta á fundinn, láta álit sitt í ljós og beina spurningum og heyra  loforð frambjóðenda.</description>
Stóriðjustefnan og Hvalfjörður
	<description>Stóriðjustefnan og Hvalfjörður
Grein eftir Ragnheiði Þorgrímsdóttur   Sjá hér</description>
Framboðsfundur Vinstri-græna í Kaffi Kjós í kvöld
	<description>Opinn samræðufundur Vg. vegna komandi alþingiskosninga verður í Kaffi Kjós þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:00
Efstu frambjóðendur hreyfingarinnar mæta á fundinn og kynna stefnumál sín,fara yfir liðið kjörtímabil og ræða staðbundin verkefni.
Allir velkomnir</description>