Fréttir
Bókasafnið opið á morgun, miðvikudag.
	<description>Bókasafnið verður opið á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar frá kl 20-22. Þeir sem eru með  bækur að láni frá safninu og búnir að lesa þær eru vinsamlegast beðnir um að skila þeim</description>
Kjósverjar endurvinna 33% úrgangs
	<description>Á árinu 2011 söfnuðust um 311 tonn af úrgangi í Kjósarhreppi í gegnum sorphirðu og endurvinnsluplanið við Meðalfell. Það gera um 1481 kg á íbúa að meðaltali sem er sambærilegt við landsmeðaltal. Um 33% þessa úrgangs fór til endurvinnslu eins og heyrúlluplast, hreint timbur, bylgjupappi og annar pappírsúrgangur, plastumbúðir o.fl. Á grafinu má sjá skiptingu þessa úrgangs og er úrgangur sem fór til endurvinnslu grænn að lit.
Um 67% úrgangsins var fargað með urðun með tilheyrandi kostnaði þar sem dýrara er fyrir sveitarfélagið að losna við blandaðan úrgang, grófan úrgang og blandað timbur auk þeirra umhverfisáhrifa sem því fylgja. Á grafinu er úrgangur sem er fargað rauður að lit. Slíkur úrgangur er urðaður og þar með glatast bæði næringarefni og hráefni úr hringrás náttúrunnar auk þess sem töluvert landssvæði þarf undir úrganginn, en hann er urðaður í Álfsnesi á urðunarstað SORPU. Þessu er öfugt farið hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins en þar fóru aðeins um 38% úrgangsins til urðunar eins og fram kemur í frétt á heimasíðu SORPU.
Í Kjósarhreppi er þjónusta vegna sorphirðu sambærileg við það sem gerist á höfuðborgarsvæðinu en helsti munurinn liggur í lífrænni vinnslu. Metangas er framleitt úr lífrænum úrgangi sem jafngildir 25% endurvinnslutölunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í Kjósarhreppi fellur til umtalsvert magn húsdýraúrgangs sem mætti nýta til metanframleiðslu ef hagstæð leið fyndist til þess. Metanvinnsla myndi einnig auka gæði áburðar úr húsdýraúrgangi samkvæmt rannsóknum sem hafa verið gerðar. Metanið er síðan hægt að nýta sem orkugjafa auk þess sem metan er ein af þeim lofttegundum sem valda auknum gróðurhúsaáhrifum í heiminum. Með því að brenna metani og umbreyta því þannig í koltvísýring er dregið úr áhrifum þess tuttuguogeittfalt auk þess sem það gæti sparað kostnað vegna rafmagnskaupa.
Það vekur athygli að pappírsúrgangur sem safnast til endurvinnslu í Kjósarhreppi er einungis 2% alls úrgangs en gera má ráð fyrir að pappírsúrgangur sé um 20% af heildarmagninu. Hér er tvímælalaust tækifæri til að leggja enn frekar af mörkum og Kjósverjar geta gert enn betur. Íbúar eru því hvattir til þess að flokka og skila bylgjupappa, drykkjarfernum, dagblöðum og tímaritum í þar til gerðan gám á endurvinnsluplani auk annars endurvinnanlegs úrgangs. Upplýsingar um hvernig skal flokka úrgang er að finna undir tenglinum flokkun úrgangs. 
Með bestu kveðjum,
Umhverfisnefnd Kjósarhrepps</description>
Hundur fannst við Fossá
	<description>Hundur fannst við Fossá í Kjós  23. janúar, einn á ferð. Ef einhver kannast við að eiga hann eða veit um réttan eiganda vinsamlegast hafið samband við Guðmund í s:8672175 
Réttur eigandi er fundinn, en hundurinn hvarf frá Vogum á Vatnsleysuströnd deginum áður og er talið með ólíkindum hvað hann hefur náð að hlaupa á einum sólarhring.</description>
Kynning á lýsing á tillögu að skipulagsbreytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2005-2017
	<description>Um er að ræða breytingu á hluta svæðis fyrir frístundabyggð í landi Eyrar í íbúðarsvæði.  Lýsing á tillögu að skipulagsbreytingu er sbr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  Breytingartillagan verður kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum þann 26.  janúar og 2. feb. nk. með opnu húsi á skrifstofu Kjósarhrepps á milli kl. 13-18 að Ásgarði.  Lýsingin er jafnframt aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.kjos.is.  Ábendingum við efni lýsingarinnar skal skila fyrir 16. feb. nk. á skrifstofu sveitarfélagsins eða á skipulag@kjos.is.
Hægt er að skoða breytingartillöguna undir Bygginarfulltrúi til vinstri á síðunni
Jón Eiríkur Guðmundsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi</description>
Snjóþyngsli og umhleypingar í Kjós
	<description>Við íbúar í Kjós höfum verið heppin með veður undanfarna vetur, lítil snjóþyngsli,  en nú bregður öðru við, greinileg kominn tími að Kjósverjar fái að kynnast  alvöru "vetri konungi" þetta árið.  
Hér í sveit byrjaði að snjóa um 24. nóvember og hafa verið nánast stanslausir umhleypingar síðan, mest  þó bætt við snjóinn.  
Kjósarhreppur hefur staðið myndarlega að mokstri vega í sveitarfélaginu, en margir íbúar stunda vinnu frá heimili sínu, börn þurfa að komast í skóla, mjólkurbíllinn að komast til að ná í mjólkina, svo ekki sé minnst á póstinn.</description>
Þorrablót kvenfélagsins afstaðið
	<description>Þorrablót kvenfélags Kjósarhrepps var haldið í Félagsgarði sl laugardag og var húsfylli að venju. Skemmtiatriði voru heimagerð eins og alltaf áður og naut skemmtinefndin að þessu sinni stuðnings Gísla Einarssonar við gerð myndar sem sýnd var á blótinu og nefndist   "Fjandinn" frétta og þjóðlífsþáttur úr Kjós.   Hljómsveitin Loftskeytamenn sáu um tónlistina og Jóhann Sveinsson um matinn. Hér til hliðar má sjá skemmtinefndina ásamt Bjössa úr Greifunum, en stofnaður var að þessu tilefni sönghópurinn "Vinkonur Bjössa"</description>
Plastgámar losaðir á laugardaginn
	<description>Rúlluplastgámarnir verða losaðir á laugardaginn, 21. janúar.
Mikilvægt er að hafa aðgengi að þeim gott, en ef  hindranir eru snjór eða svell, þarf að færa þá til annars er hætta á að þeir verða ekki losaðir.</description>
Firðskeyti
	<description>Firðskeyti er orð sem kemur sjaldan við sögu hjá lögreglu en þó gerðist það í síðustu viku. Þannig var að tveir gámar féllu af flutningaskipi og rak þá á fjöru í Kjósarhreppi. Eigandi jarðarinnar lét lögreglu vita í samæri við lög um skipströnd og vogrek frá árinu 1926. Lögreglustjóri gerði svo ráðherra grein fyrir málinu, og hið sama stóð til að gera gagnvart eigendum gámanna, í samræmi við sömu lög eða eins og segir í I. kafla um skipströnd, 1. gr.;
Hver, sem þess verður var, að hafskip sé í hættu statt við land eða strandað, eða að góss úr því reki á land, er skyldur að gera allt, sem í hans valdi stendur, til þess að bjarga mönnum og góssi, enda skal hann tafarlaust skýra hreppstjóra, eða lögreglustjóra, ef auðveldara er að ná til hans, frá atburðum með firðskeyti eða símtali, ef þess er kostur, en ella með skyndiboða. Hreppstjóri skal með sama hætti skýra lögreglustjóra frá skipreika. Lögreglustjóri skýrir síðan dómsmálaráðherra, svo og eigendum og vátryggjendum skips og farms eða umboðsmönnum þeirra, ef vitað er, hverjir eru, frá því, hvernig komið er, með firðskeyti, ef þess er kostur, en ella með næstu póstferð. Dómsmálaráðuneytið skal svo, jafnskjótt sem unnt er, tilkynna skipreikann fyrirsvarsmanni þess ríkis, sem skip er frá.
Reyndar kaus lögreglustjóri að koma tilkynningunni á framfæri með tölvupósti en slíkt þykir hefðbundið á 21. öldinni. Orðið firðskeyti hefur annars þá merkingu, eftir því sem skrifari veit best, að það stendur fyrir nokkurskonar skeyti sem sent er með hjálp síma eða telex og er skrifað út hjá móttakanda.
Að síðustu má geta þess að finnandi gámanna í Kjósarhreppi var nýbúinn að ræða það við sveitunga sinn að sennilega þyrftu þeir að útvega sér gáma í tengslum við nýtt reykhús sem þeir eru með í bígerð. Hinn sami hafði á orði að sennilega myndi nú eitthvað reka á fjörur þeirra og reyndist hann sannspár. Þrátt fyrir fundinn verða mennirnir þó að öllum líkindum að finna sér aðra gáma undir starfsemina (Frétt tekin af vef Lögreglunnar)</description>
Fjórir dagar í þorrablót
	<description>Aðeins fjórir dagar eru nú í þorrablótið og auglýsingin komin í hús. Núna er bara að finna sparifötin og hefjast handa við pressun.</description>
Járninganámskeið
	<description>Adam stendur fyrir járninganámskeiði sunnudaginn 12. Febrúar. Námskeiðið er haldið i Blönduholti. Kennari er járningameistarinn Sigurður Torfi Sigurðsson. Kennsla ber bæði bókleg og verkleg, Þátttakendur mega koma með hesta með sér. Námskeiðið hefst kl. 10 og lýkur seinni part dagsins. Gjaldið er kr. 8000 (m.v. nægan fjölda þátttakenda). Þetta er frábært tækifæri til að læra af meistaranum.Þátttaendur tilkynni þátttöku í síðasta lagi 21 janúar á netfangið: bjossi@icelandic-horses.is eða í s. 895-7745.Hestamannafélagið Adam.</description>
Fimm dagar í Þorrablótið
	<description>Aðeins fimm dagar eru nú  í hið árlega þorrablót kvenfélagsins sem að vengju hefur veðið haldið fyrsta laugardaginn í þorra. Skemmtinefndin er að mestu klár með sitt verkefni en eitthvað hefur PÓSTURINN klikkað á að bera út auglýsinguna fyrir blótið og er hér með lýst eftir henni.</description>
Níu dagar í þorrablót
	<description>Níu dagar eru nú í þorrablót kvenfélagsins  og veðurspáin er góð, en norska veðurstofan spáir sól og blíðu þann 21.</description>
Þrettándabrenna við Félagsgarð
	<description>Haldin verður hin árlega þrettándabrenna við Félagsgarð í Kjós á morgun en veðurspáin er all góð.  Fólk er hvatt til að mæta við brennuna og taka börnin með. Kveikt verður í brennunni kl 20:30 og flugeldasýning hefst á sama tíma. Jólasveinarnir eru nú flestir á leið til síns heima enda þrettándi dagur jóla. Einn hefur lofað koma við á leið sinni heim og er aldrei  að vita nema hann hafi einhverja restar handa börnunum í pokahornum sínum. 
Kvenfélagið mun bjóða uppá heitt kákó og meðlæti við hæfi</description>
Brenna á föstudaginn ef veður verður gott
	<description>Brenna verður við Félagsgarð á föstudagskvöldið 6. janúar ef veður verður gott.
Nánari upplýsingar á vefnum þegar nær dregur.</description>
Frá  Aðalfundi SF.Kjós 2011
	<description>Aðalfundur SF.Kjós  2011 var haldinn í Ásgarði  þann 7 desember s.l.
Að afloknum hefðbundnum aðalfundarstörfum þar sem stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Guðmundur Davíðsson, María D. Þórarinsdóttir og Hreiðar Grímsson, tóku gestir fundarins til máls fyrst Sigurgeir Sindri, formaður Landssamtaka Sauðfjárbænda, hann kynnti fyrir okkur öll þau málefni sem Landssamtökin eru að kljást við þessa dagana  og Árni B. Bragason, frá  Bú-Vest, kom og upplýsti um  framgang kynbótastarfsins  í félaginu okkar.   Góðar umræður urðu á fundinum  um hin ýmsu mál er snúa að sauðfjárræktinni.  
Fundurinn sendi frá sér  2 ályktanir.
1.    Sent  MAST, LS og Ólafi Dýrmundssyni.
Aðalfundur SF. Kjós haldinn í Ásgarði 7. des. 2011 samþykkir að beina því til Mast að endurskoða reglur um ómerkt fé sem kemur til slátrunar,eða leita eftir undanþágu frá þessu ákvæði,eða finna einhverja leið t.d. með útgáfu sérstakra merkja sem sveitarfélög og upprekstrarfélög geta fengið úthlutað frá Mast, svo hægt sé að nýta þessa gripi á eðlilegan hátt.
Ótækt er að ómerkt fé og annað  óskilafé sé sent til urðunar frá sláturhúsum í stað þess að andvirði þess renni til sameiginlegra sjóða eins og verið hefur, enda verða upprekstrarfélög/ sveitarfélög fyrir kostnaði vegna þessa fjár.
Hætta er á að fé þessu verði ekki skilað í sláturhús eins og verið hefur heldur verði farið að ráðstafa því með öðrum hætti. 
2.     Sent Tölvudeild BÍ og  LS.                                                      
Aðalfundur SF.Kjós haldinn í Ásgarði þann 7.12.2011, samþykkir að skora á tölvudeild BÍ, þ.e. forritara og umsjónarmenn Fjárvíss, að athuga hvort ekki væri hægt að setja upp pörunarforrit í fjárvís, samskonar og er í Worldfeng, þar sem hægt er að para saman einstaklinga og jafnvel hópa og sjá skyldleika þeirra (%), mögulega liti, og kynbótaspá.
Stjórn SF.Kjós.</description>
ATH. losun á fimmtudaginn 5. janúar
	<description>Sorptunnur verða samkvæmt breytingu tæmdar á morgun, fimmtudaginn 5. janúar. Íbúðarhúsaeigendur eru vinsamlegst beðnir um að hafa gott aðgengi að þeim, annars er hætta á að þær verði ekki tæmdar. 
Bílstjórinn hafði orð á því eftir síðustu losun að aðgengi hefði verið misgott hjá íbúum  og  ítrekar nú að það verði haft í lagi.</description>
Jólatrésskemtuninni frestað
	<description>Jólatrésskemtuninni sem ákveðið var að halda í Félagsgarði í dag kl 16 er frestað vegna ótryggs veðurútlits. Skoðað verður hvort hægt væri að halda hana að viku liðinni. Nánar auglýst síðar.</description>
Jólatrésskemmtun á föstudaginn 30. desember kl 16
	<description>Jólatrésskemmtun verður haldin í Félagsgarði Kjós föstudaginn 30. desember 2011 kl 16 í boði Kjósarhrepps og kvenfélags Kjósarhrepps. Allir eru velkomnir.</description>
Skrifstofur Kjósarhrepps lokaðar á milli jóla og nýárs
	<description>Skrifstofur Kjósarhrepps verða lokaðar á milli jóla og nýárs. Opna aftur þriðjudaginn 3. janúar 2012.</description>
Skötuveislan á föstudaginn 23. desember í Félagsgarði kl 13
	<description>Minni íbúa á að panta þarf í veisluna tímanlega, vegna aðfangaöflunar.
Á boðstólum verður tindabikkja vel kæst að vestan, skata, saltfiskur, sérbakað rúgbrauð að hætti Steinunnar á Meðalfelli og annað ágætt meðlæti.
Aðeins verður boðið upp á vatn til að renna skötunni niður með. Gestir er því beðnir um að hafa drykkjarföng með ef þeir ef þeir kjósa að drekka eitthvað annað en blákalt íslenskt vatnið.</description>