Kjósarhreppur - Myndir

 

 

 Netfang:  valshamarkjos@gmail.com

Símatími Valshamars er á þriðjudögum frá kl 17:00-19:00 og að laugardögum frá kl 12:00-15:00 í síma 8626766 


Formaður:

Eva Björk Friðjónsdóttir,  Hömrum 2, sími 8624659

 

Ritari:

Skúli Skúlason, Eyrar 17

 

Gjaldkeri:

Estiva Einarsdóttir,    Hlíð 31

 

Meðstjórnendur

Friðjón Skúlason,  Hlíð 46

Magnús Sigurðsson, Hlíð 13A

 

 Endurskoðendur:
Guðmundur Ingimundarson, Hlíð 47.
Egill Sigurðsson, Eyrar 25.

 

Landeigandi:
Gísli Ellertsson, Meðalfelli, Kjós
sími 566-7032 

Valshamar

                                    

Félag sumarbústaðaeigenda

Eilífsdal

 

 

 

Aðalfundur 2012

 

 

Aðalfundur Valshamars

Verður haldinn mánudaginn 26.mars Kl.20.00

Í sal skátfélags Hraunbúa, Hjallabraut 51, Hafnarfirði

 

 Fundarefni:

 

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

 

2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.

 

3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar og umræður um þá.

 

4. Kosning stjórnar

 

5. Kosning skoðunarmanna reikninga og varamanna þeirra.

 

6. Framlagning rekstrar og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár.

 

7. Ákvörðun um árgjald til félagsins.

 

8. Önnur mál. 

 

 Kveðja

 

Stjórnin

 

 

 

Aðalfundur Valshamars  2010.

Fundur haldinn 13. Maí 2010 kl. 12:00 í Félasgarði í Kjós.

Eva Björk Friðjónsdóttir formaður setti fundinn. Fundastjóri Skúli Skúlason Eyrar 17 og 19, fundarritari Björk Arnardóttir Hömrum 8.

1.Formaður flutti skýrslu stjórnar.

Girðing: Stærsta framkvæmd síðarsliðið ár var ný girðing kringum hluta af landinu. Þegar byrjað var á girðingunni sást fljótlega að við þurtum að leggja meiri girðingu en upphaflega var ákveðið vegna geita og annarra búfénaðar sem komust inn á landið vegna gamala girðinga. Því var sendur netpóstur á alla félagsmenn og útskýrt að það væri mikilvægara að losna við búfénað af landinu okkar en að gera við veginn. Enginn mótmælti því og var farið í áframhaldandi vinnu á girðingunni.

 

Um síðustu hvítasunnu var tiltektardagur, við vorum með vörubíl í stað gáma því Gámaþjónustan ruglaðist á helgi með að senda gáma. Margir nýttu tækifæri að rífa gamlar girðingar og nokkrir tóku sig til að snyrta tréin við ráðhúsið og stjórnar konur báru á pallinn við ráðhúsið. Hreinu timbri og greinum var safnað saman í brennu og var kveikt á henni um kvöldið.

Vegur var heflaður og rikbundinn í byrjun sumars.

Smíðaðir voru tveir stigar sem voru settir á gönguleiðir sem eru opnir öllum, þeir eru við Hamra 2 og neðst við Hamarinn þar sem farið er til að klifra í hamrinum.

Verslumannahelgin gekk vel fyrir sig, ýmislegt skemmtilegt var í boði fyrir allan aldur t.d. hestar,markaður, grilla sykurpúða, heitt á könnunni og endaði með brennu og söngi um kvöldið og það er spurning hvort göturnar fari ekki að æfa sig fyrir næstu verslumannahelgi í reipitogi eða hjólböru akstri.    Við skulum klappa fyrir nefndinni.

Vatnsveitan:  Það var grafið frá vatnstönkum upp í fjalli og þeir hreinsaðir. Þetta var gert til að auka vatnsstreymið ofan í tankana því mikið fór fram hjá þeim.

 

Við fórum ekki í tölvu kaup fyrir félagið eins og stóð til því ritarinn hefur sína eigin tölvu fyrir allar upplýsingar um hlið og símanúmer. Við í stjórnini viljum þakka Magnúsi og Hlíðari kærlega fyrir frábært framlag gagnvart hliðinu.

Nú tekur Magnús við  og segir ykkur um stöðu hliðins.

Hann tók við hliðinu maí 2009. Talaði við Nortek taldi sig vera í góðu viðræðum við þá.Þeir sýna samstarfsvilja. En svo kom á daginn að reikningarnirnar voru komnir í málaferli sem er núna hjá lögrfræðing landsamband sumarhusaeiganda. Sem mun sjá um málin. Magnús fann út að skinjarar voru ekki að virka en þegar hann var búin að finna út úr því hefur gengið mjög vel með hliðið en þegar rafmagn fer er hliðið ekki virt og símsamband dettur stundum út svo dalsbúar verða alltaf að vera viðbúnir að þurfa að nota neyðarhliðið. Mun hann reyna að gera allt í sínu valdi til að þetta verði í lagi.

Opnað fyrir umræður:

Dalsbúar ánægðir með girðingarmálin.

Ágúst Hlíð 43 tekur til máls: Finnst ekki rétt farið með það sem er getið í fundagerð aðalfundar 2009. Að hann hafi ekki gert munlegan samning við vertaka heldur verið búin að leit eftir hugmyndum til að gera framkvæmdaráætlun. Minnir á að stjórnin verði að fara eftir lögum Frístundarfélags Valshamars og landsamband sumarhúseiganda. Ekki sé rétt farið með að Nordik hafi farið of seint af stað það væri vegna Rarik.

Karl Hamrar 2 tekur til máls: Finnst sjálfsagt að stjórn taki bestu lausn fyrir félagið og segir frá háum kostnaði  á hliðum þar sem hann vann meðan það var í hendi Nordek  en þegar rafvirki tók við lækkaði kostnaðurinn til muna.

Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og samþykktir.

Kaffi hlé.

Kostning formanns og stjórnar:

Eva Björk Friðjónsdóttir, Hamrar 2 gefur kosta á sér áfram.Ekki fleiri tillögur .  Samþykkt

Ritari: Skúli Skúlason Eyrar 17. Gjaldkeri Estiva Einarsdóttir Hlíð 31, Meðstjórnendur Friðjón Skúlason Hlíð 46 og Magnús Sigurðsson Hlíð 13A.

Skoðunarmenn reikninga kostnir Guðmundur Hlíð 50 og Egill Eyrum 25.

 

 

 

Rekstar- og framkvæmdaáætlun fyrir þetta ár:

Girðing 1,5 milljón, 

Vegur 300.000.-

Vatnsveita allt að  1 milljón.

Styrkur 150.000.- Til þriggja sumarhusaeigenda vegna niðursetnigu trjáa frá hliði að ráðhúsi.

Stjórn lagði fram tillögu um óbreytt ársgjald kr. 20.000 á hverja lóð. Tillaga sem fram kom um að hækka ársgjaldið  var felld.

Önnur mál:

Stjórnin ber upp tillögu um að selja ráðhúsið, þar sem mikil kostnaður liggi fyrir að halda því við og það sé bara notað einu sinni á ári um verslumannhelgi. Margir stóðu upp og tóku til máls .

Fundarstjóri lagði til atkvæðagreiðslu hvort mætti selja ráðhúsið og stjórnin tæki það að sér að meta verð og ákvörðurétt til að selja.  Samþykkt. ( 5 á móti.)

 

Mikil umræða fór að stað um hliðin sem eru á eyrunum hvort þau ættu að vera læst eða ekki. Voru skiftar skoðanir um það mál.

Fundastjóri ber upp til atkvæðagreiðslu  hvort dalbúar samþykki lokun á götum með lás ef lyklar gangi af því sama og neyðarhliðinu.  Samþykkt.

Tillaga kom að færa gámana. Mikil ópríði af þeim þegar komið er í dalinn verður það athugað og reynt að taka tillit til allra. Dalbúar mynntir á að ganga betur um gámana og einungis heimilssorp fari í þá.

Tiltektardagur á Hvítasunnudag og brenna um kvöldið ef veður leyfir.

Magnús Guðbjartson býðst til að laga svæðið hjá brennu. Fögnuðu dalsbúar því.

Spurt var um hunda og kattarhald á svæðinu.  Bent var á að það hafi verið samþykkt 2008 en eingönngu í bandi og vijum við ítrekað benda fólki að virða það.

Tilkynning kom frá hreppnum að rotþrær verða tæmdar  í maí og júni.

Fundi slitið kl.15

 

 

 

VALSHAMAR, félag sumarbústaðaeigenda í Eilífsdal, Kjós

 

Lóðir, sem hafa hlotið viðurkenningu fegrunarnefndar:

 

1984    Eyrar 20         Guðbjörg Guðjónsdóttir og Eðvar Ólafsson

            Hlíð 3             Matthildur Jónsdóttir og Sýrus Magnússon

            Hamrar 3       Nanna Jónsdóttir og Ólafur Hannesson

 

1985    Hlíð 5             Inga Á. Eiríksdóttir og Þórður Guðnason

 

1986    Hlíð 35           Guðrún S. Guðmundsdóttir og Jón Þorvaldsson

            Hlíð 38           Ásdís Krisjánsdóttir og Jón Halldórsson

 

1987    Hlíð 4             Guðbjörg Guðnadóttir og Gestur Magnússon

 

1988    Hlíð 39           Anna Jóna G. Betúelsd. og Þorkell Guðmundsson

 

1989     Hlíð 27          Guðrún Ólafsdóttir og Gunnar Oddsson

 

1990    Hlíð 30           Ásgerður S. Jónasdóttir og Tryggvi Jónsson

 

1991    Eyrar 22         Stefanía Bjarnadóttir og Tryggvi Guðmannsson

 

1992    Eyrar 15         Steinunn Lorenzdóttir og Þorgeir Gíslason

 

1993    Eyrar 5                       Ingibjörg Þorfinnsd. og Guðmundur Þorbjörnsson

 

1994    Hlíð 40           Ragnheiður Hannesdóttir og Víglundur Sigurjónss.

 

1995    Hlíð 62           Ágústa K. Magnúsdóttir og Sigurður Jónsson

 

1996    Hlíð 66           Fjóla Kristjánsdóttir og Valdemar Nielsen

 

1997    Hlíð 68           Stella Halldórsdóttir og Snorri W. Sigurðsson

 

1998     Hlíð 29    Vilborg Víglundsdóttir og Gísli Albertsson

 

1999    Hlíð 31           Hrefna Jónsdóttir og Ríkarður Árnason

 

2000    Hlíð 19 A       Rannveig Ívarsdóttir og Otti Kristinsson

 

2001    Hlíð 7             Jónína Hafsteinsdóttir og Ármann Einarsson

 

2002    Hamrar 13     Málfríður Jónsdóttir og Haukur Bjarnason

 

2003    Hlíð 46           Petrún Jörgensen og Friðjón Skúlason

 

2004    Hamrar 9       Þóra K. Sigursveinsdóttir og Heimir Morthens

 

2005    Hlíð 69           Árný Friðriksdóttir og Jón H. Gunnarsson

 

2006    Hlíð 15 A       Sigríður Þorsteinsdóttir og Guðlaugur Jónsson

 

2007    Hlíð 40           Fríða Björk Einarsdóttir og Guðmundur Einarsson      

 

2008    Eyrar  9            Sjöfn Ólafsdóttir og Gunnar Ingi Jónsson

 

2009     Hlíð 7A            Markús Sigurðsson og frú

 

2010     Hlíð 43             Erna K. Þorkellsdóttir og Ágúst Guðmundsson