Samþykkt fyrir heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is
Kjos.is er vefsíða sveitarfélagsins Kjósarhrepps
Málefni síðunnar heyrir beint undir hreppsnefnd Kjósarhrepps
Kjósarhreppur ber endanlega ábyrgð á því efni sem birtist á vefnum komi til málshöfðunar vegna heimasíðunnar.
Skrifstofa Kjósarhrepps skal setja inn á síðunna allt það efni sem er tilgreint er í ritstjórnarstefnu síðunnar og tilheyrir hreppnum.
Hreppsnefnd ræður ritstjóra og vefstjóra heimasíðunnar.
Ritstjórnarstefna síðunnar skal mótuð af hreppsnefnd og skal hún vera aðgengileg á forsíðu heimasíðunnar.
Allir kjörnir hreppsnefndarmenn hafa stöðu vefara og geta sjálfir sett inn efni á mið-forsíðu á síðunni.
Ritstjóra heimilt að úthluta einstaklingum stöðu vefara.
Allir sem hafa stöðu vefara skulu undirrita það efni sem þeir setja inn og merkja það fangamerki og bera ábyrgð á því
Samþykkt hreppsnefnd Kjósarhrepps þann. 5. febrúar 2009