Félags- og jafnréttisnefnd:
Aðalmenn:
Jóhanna Hreinsdóttir Káraneskoti formaður joh12@hi.is
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir Traðarholti emth@hive.is
Þórunn Stefanía Steinþórsdóttir ritari ssteinthor@simnet.is
Varamenn:
Ólafur Engilbertsson Borgarhóli
Gunnar Leó Helgason Felli
Sigríður Lárusdóttir Hurðarbaki
Fundagerðir birtar undir FUNDAGERÐIR á forsíðu
Erindisbréf fyrir Félags og jafnréttisnefnd
Félags- og jafnréttisnefnd Kjósarhrepps er skipuð af sveitarstjórn Kjósarhrepps og í henni skulu sitja þrír fulltrúar og jafn margir til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kosningar til sveitarstjórnar. Á fyrsta fundi fer fram kjör formanns, varaformanns og ritara.
Formaður boðar fundi með dagskrá. Nefndin heldur fundi þegar verkefni liggja fyrir. Rita skal fundargerð nefndarinnar í sérstaka fundargerðarbók. Allar tillögur sem fram eru bornar skulu skráðar svo og samþykktir og ályktanir. Skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Nefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilfellum víkja af fundi. Þeir sem sitja fundi nefndarinnar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann láta formann nefndarinnar vita um forföll með góðum fyrirvara og formaður boðar þá fyrsta varamann.
Nefndin skal leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst verða samkvæmt lögum og í þágu allra íbúa sveitarfélagsins sem leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í nefndinni að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa
Hlutverk nefndarinnar
Nefndin skal sjá til þess að lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 sé framfylgt í hreppnum, einnig með jafnréttismál samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla nr.10/2008 og málefni samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998 og umsjón með málefnum fatlaðra nr.59/1992 og aldraðra nr.125/1999.
Félagsmál Tryggja fjárhags- og félagslegt öryggi íbúanna og stuðla að velferð þeirra á grundvelli samhjálpar og þá er verið að tala um:
· Stuðla að bættum lífskjörum þeirra sem standa höllum fæti
· Tryggja þroskavænleg uppeldisskilyrði barna- og ungmenna
· Gera íbúum kleyft að búa sem lengst í heimahúsum, stunda vinnu og lifa sem eðlilegustu lífi
· Grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir félagslegt vandamál
· Hvatning til einstaklinga til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt og styðja hann til sjálfshjálpar
· Yfirfara samþykktir og gera tillögur til hreppsnefndar.
· Endurskoðun samningana við Mosfellsbæ, annars vegar vegna barnaverndarmála og hins vegar félagþjónustu
· Fjalla um þau mál er sveitarstjórn felur nefndinni hverju sinni
· Heimgreiðslur foreldra ungbarna,
Jafnréttísmál Lög um Jafnréttisnefndir
Í 10. gr. jafnréttislagaer kveðið á um að sveitarstjórnir skulu skipa 3-5 manna jafnréttisnefnd sem á að vinna samkvæmt jafnréttislögunum. Hún á að hafa umsjón með gerð jafnréttisáætlunarfyrir sveitarstjórnina til fjögurra ára en hana á að leggja fram ekki síðar en ári eftir kosningar
· Gera tillögu að jafnréttisstefnu fyrir Kjósarhrepp til næstu fjögurra ár
Gildistaka
Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnalaga nr.45/1998 um verkefni sveitarfélaga og starfsemi nefnda á þeirra vegum. Erindisbréf þetta var samþykkt í hrreppsnefnd Kjósarhrepps þann 2. September 2010 og tekur þegar gildi