Erindisbréf fyrir fræðslu- og menningarmálanefnd
Fræðslu og menningarmálanefnd Kjósarhrepps er skipuð af sveitarstjórn Kjósarhrepps og í henni skulu sitja þrír fulltrúar og jafn margir til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kosningar til sveitarstjórnar. Á fyrsta fundi fer fram kjör formanns, varaformanns og ritara.
Formaður boðar fundi með dagskrá. Nefndin heldur fundi þegar verkefni liggja fyrir. Rita skal fundargerð nefndarinnar í sérstaka fundargerðarbók. Allar tillögur sem fram eru bornar skulu skráðar svo og samþykktir og ályktanir. Skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Nefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilfellum víkja af fundi. Þeir sem sitja fundi nefndarinnar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann láta formann vita um forföll með góðum fyrirvara og formaður boðar þá fyrsta varamann.
Nefndin skal leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst verða samkvæmt lögum og í þágu allra íbúa sveitarfélagsins sem leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í nefndinni að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa
Hlutverk nefndarinnar
Hlutverk Fræðslu- og menningarmálanefndar er að vera sveitarstjórn til ráðgjafar í málefnum er varða fræðslu og uppeldismál og menningartengd málefni. Nefndin vinnur að stefnumótun og gerir tillögur til hreppsnefndar um úrlausn og upptöku mála er varða starfssvið hennar. Þá sendir hreppsnefnd til umsagnar málefni er heyra undir nefndina.
Fræðslumál
· Tryggja skal að börn á leik- og grunnskólaaldri í Kjósarhreppi fái lögboðna fræðslu og starfsskilyrði á við börn annarra sveitarfélaga.
· Finna heppilegustu leiðina til að börn og unglingar í Kjósarhreppi fá að taka þá í tómstunda- og æskulýsstarfi til jafns á við börn úr öðrum sveitarfélögum
· Nefndin gerir tillögu að ferðastyrk til handa framhaldsskólanemendum
· Fulltrúi Kjósarhrepps í foreldraráði Klébergsskóla heyrir undir nefndina
· Endurskoða akstur skólabarna í upphafi hvers skólaárs
· Frístundagreiðslur
Menningarmál
· Umsjón með bókasafni og gerir tillögur um starfstilhögun og rekstur þess
· Stuðla að öflugu félagsstarfi í hreppnumog sjá til þess að starfandi félög fái viðunnandi starfsaðstöðu og aðstöðu til vörslu félagsmuna í Ásgarði
· Styðja við og hafa frumkvæði að hvers konar menningarviðburðum í Kjósarhreppi
· Hafa umsjón með Kátt í Kjós og Jólamarkaði og gera nákvæma stefnumótun um hvorn viðburð
· Skoða mál Möðruvallaréttar og koma með tillögu um framtíð hennar
· Fjalla um þau mál sem sveitarstjórn felur nefndinni hverju sinni
Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnalaga nr. 45/1998 um verkefni sveitarfélaga og starfsemi nefnda á þeirra vegum. Erindisbréf þetta var samþykkt í hreppsnefnd Kjósarhrepps þann 2. September 2010 og tekur þegar gildi