Kjósarhreppur - Myndir

Samgöngu- og fjarskiptanefnd

Aðalmenn:


Sigurður Ásgeirsson Hrosshóli formaður

Sigríður Klara Árnadóttir Klörustöðum ritari
Einar Hreiðarsson Traðarholti

 

Varamenn:


Guðmundur Magnússon Káraneskoti

Björn Ólafsson Þúfu

Helgi Guðbrandsson Hækingsdal

 

 

Erindisbréf  fyrir samgöngu- og fjarskiptanefnd

 

Samgöngu- og orkunefnd Kjósarhrepps er skipuð af sveitarstjórn Kjósarhrepps og í henni skulu sitja þrír fulltrúar og jafn margir til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kosningar til sveitarstjórnar. Á fyrsta fundi fer fram kjör formanns, varaformanns og ritara.

Formaður boðar fundi með dagskrá. Nefndin heldur fundi þegar verkefni liggja fyrir. Rita skal fundargerð nefndarinnar í sérstaka fundargerðarbók. Allar tillögur sem fram eru bornar skulu skráðar svo og samþykktir og ályktanir. Skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Nefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilfellum víkja af fundi. Þeir sem sitja fundi nefndarinnar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.                                                                                                                        

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann láta formann  vita um forföll með góðum fyrirvara og formaður boðar þá fyrsta varamann.

Nefndin skal leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst verða samkvæmt lögum og í þágu allra íbúa sveitarfélagsins sem leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í nefndinni að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa

 

Hlutverk nefndarinnar

  • Er að vinna að bættum samgöngum og fjarskiptum í hreppnum
  • Að fjalla um þau málefni sem sveitarstjórn felur nefndinni hverju sinni
  • Nefndin geti tekið ákveðin mál og vísað til hreppsnefndar

 

Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnalaga nr. 45/1998 um verkefni sveitarfélaga og starfsemi nefnda á þeirra vegum. Erindisbréf þetta var samþykkt í hreppsnefnd Kjósarhrepps þann 7. október, 2010 og tekur þegar gildi