|
Erindisbréf fyrir skipulags- og byggingarnefnd
Skipulags- og bygginganefnd Kjósarhrepps er skipuð af sveitarstjórn Kjósarhrepps og í henni skulu sitja fimm fulltrúar og jafn margir til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kosningar til sveitarstjórnar. Á fyrsta fundi fer fram kjör formanns, varaformanns og ritara.
Formaður boðar fundi með dagskrá. Nefndin heldur fundi þegar verkefni liggja fyrir. Rita skal fundargerð nefndarinnar í sérstaka fundargerðarbók. Allar tillögur sem fram eru bornar skulu skráðar svo og samþykktir og ályktanir. Skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Nefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilfellum víkja af fundi. Þeir sem sitja fundi nefndarinnar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann láta formann vita um forföll með góðum fyrirvara og formaður boðar þá fyrsta varamann.
Nefndin skal leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst verða samkvæmt lögum og í þágu allra íbúa sveitarfélagsins sem leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í nefndinni að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa
Hlutverk nefndarinnar
- Að fara með verkefni samkvæmt skipulags- og byggingalögum nr. 73/1997 og skipulagsreglugerð og fylgjast með að ákvæði þeirra séu haldin.
- Að gera tillögur til hreppsnefndar um stefnu í skipulags-, byggingar- og umferðarmálum og hafa eftirlit með að stefnu hreppsnefndar á hverjum tíma sé framfylgt.
- Að hafa forgöngu um gerð og breytingar á skipulagsáætlunum og fjalla um skipulagstillögur.
- Að vinna að öðrum þeim verkefnum sem hreppsnefnd felur nefndinni á hverjum tíma.
· Nefndin geti tekið ákveðin mál og vísað til hreppsnefndar
Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnalaga nr. 45/1998 um verkefni sveitarfélaga og starfsemi nefnda á þeirra vegum. Erindisbréf þetta var samþykkt í hreppsnefnd Kjósarhrepps þann 7. október og tekur þegar gildi
|