|
. Erindisbréf fyrir umhverfis, náttúru- og landbúnaðarnefnd
Umhverfis, náttúru- og landbúnaðarnefnd Kjósarhrepps er skipuð af sveitarstjórn Kósarhrepps og í henni skulu sitja þrír fulltrúar og jafn margir til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kosningar til sveitarstjórnar. Á fyrsta fundi fer fram kjör formanns, varaformanns og ritara.
Formaður boðar fundi með dagskrá. Nefndin heldur fundi þegar verkefni liggja fyrir. Rita skal fundargerð nefndarinnar í sérstaka fundargerðarbók. Allar tillögur sem fram eru bornar skulu skráðar svo og samþykktir og ályktanir. Skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Nefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilfellum víkja af fundi. Þeir sem sitja fundi nefndarinnar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann láta formann vita um forföll með góðum fyrirvara og formaður boðar þá fyrsta varamann.
Nefndin skal leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst verða samkvæmt lögum og í þágu allra íbúa sveitarfélagsins sem leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í nefndinni að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa
Hlutverk og verkefni umhverfis, náttúru- og landbúnaðarnefndar
· Gera tillögur til sveitarstjórnar um stefnu í umhverfis, náttúru- og lanbúnaðamálum.
· Hafa eftirlit með að stefnunni sé viðhaldið
· Hafa að markmiði að unnið sé eftir Staðardagskrá 21
· Að fara með náttúruverndarmál samkvæmt þeim lögum og reglum sem í gildi eru og að framfylgt sé þeim þáttum á því sviði sem er hlutverk sveitarstjórna en ekki annarra að framfylgja
· Að vera eftirlitsaðili þeirra svæða sveitarfélagsins sem eru á náttúruminjaskrá ásamt friðlandi fugla, skógræktar, opnum svæðum og útivistarsvæðum og göngustígum
· Stuðla að merkingu og kynningu á náttúruminjum svo og þeim stöðum sem hafa sérstakt útivistar og að sögulegt gildi
· Hafa umsjón með merkingu örnefna
· Að veita sveitarstjórn umsögn um svæðis, aðal- og deiliskipulag svæðisins
· Að stuðla að fegrun sveitarfélagsins og snyrtilegri umgengni og leggja sérstaklega áherslu á samstarf við félagasamtök, sumarhúsaeigendur, bændur og einstaklinga í því sambandi
· Að hafa frumkvæði að endurvinnslu og sorpflokkun og stuðla að fræðslu og kynningu á þeim málaflokkum fyrir íbúa sveitarfélagsins
· Vinna að, að svæði á náttúruminjaskrá verði nánar skilgreind
· Hafa umsjón með gerð áningastaða
· Skilgreina þá staði sem á að vernda og þá sem henta til ræktunar
· Kanna möguleika á friðlýsingu ákveðinna svæða
· Möðruvallarétt, framtíð hennar
· Að fjalla um þau málefni sem sveitarstjórn felur nefndinni hverju sinni
Umhverfisnefnd skal fá til umsagnar áætlanir um verklegar framkvæmdir sem stofnað geti í hættu umhverfisþáttum sem sérstakt gildi hafa og er líklegt að hafi áhrif á náttúruna
Gildistaka
Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnalega nr. 45/1998 um verkefni sveitarfélag og starfsemi nefnda á þeirra vegum. Erindisbréf þetta hefur verið samþykkt í sveitarstjórn Kjósarhrepps 2. September 2010 og tekur gildi þegar.
.
...................til baka |