Fara í efni

Breyttur fundartími skipulags- og byggingarnefndar í desember 2021

Breyttur fundartími skipulags- og byggingarnefndar í desember 2021.

Skipulags- og byggingarnefnd Kjósarhrepps fundar að jafnaði síðasta fimmtudag hvers mánaðar.

Sú breyting verður nú í desember, að næsti fundur skipulags- og byggingarnefndar verður þriðjudaginn 21. desember.

Mál eða umsóknir sem óskað er eftir að tekin verði til umfjöllunar á fundinum, þurfa að hafa borist í síðasta lagi föstudaginn 17. desember 2021.

Á nýju ári verður fundað sem fyrr síðasta fimmtudag hvers mánaðar og umsóknir þurfa að hafa borist síðasta föstudag fyrir fund.

Skipulags- og Byggingarfulltrúi Kjósarhrepps.

Til baka
Deila viðburði