Fara í efni

Hrútasýning 2019

Hin árlega hrútasýning fyrir Kjós, Kjalarnes og Mosfellsbæ verður haldin í fjárhúsinu á Kiðafelli, mánudaginn 14. október og hefst hún klukkan 13.00. Þar munu sauðfjárdómarar frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins stiga og ómmæla lömb og veturgamla hrúta ásamt því að velja bestu hrúta svæðisins og verðlauna þá.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu RML eru beðnir að hafa samband við Ólöfu Ósk í síma 849-8254 eða á netfangið olofosk@lbhi.is.
Um kl. 16:00 verður verðlaunaafhending og eru allir hjartanlega velkomnir til að vera viðstaddir og þiggja kaffiveitingar. Svo er auðvitað um að gera að kaupa og selja kynbótagripi!
Hlökkum til að sjá ykkur.

Sauðfjárræktarfélagið Kjós

Til baka
Deila viðburði