Fara í efni

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur 

Gjaldskrá fyrir þau börn sem sækja grunnskóla og frístunda hjá Reykjavíkurborg. Ef systkini, tvö eða fleiri, eru í vistun á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar eða sértækum félagsmiðstöðvum eða eru í vistun í leikskólum borgarinnar er veittur 100% systkinaafsláttur af dvalargjaldi eldra systkinis/eldri systkina. Í þeim tilvikum er miðað við sama fjölda daga/stunda og hjá yngra/yngsta barni. Foreldrar skulu alltaf greiða gjald vegna yngsta barns. Það sama gildir ef skóla- og frístundasvið greiðir framlag vegna systkinis/systkina í sjálfstætt reknum leikskóla eða til dagforeldris eða greitt er framlag til sjálfstætt rekins grunnskóla vegna reksturs frístundaheimilis samkvæmt samningi þar um. Skilyrði fyrir afslætti er að öll börnin séu með sama fjölskyldunúmer/lögheimili í þjóðskrá. Foreldrar greiða fullt gjald fyrir síðdegishressingu allra barnanna og fullt gjald vegna skráningar á langa daga. Afsláttur samkvæmt reglum þessum er veittur, að öllum skilyrðum uppfylltum, til þess foreldris sem, samkvæmt þjóðskrá, hefur sama lögheimili og fjölskyldunúmer og barn á frístundaheimili / í sértækri félagsmiðstöð.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp, eða óskað er eftir breytingum, skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Hægt er að segja upp þjónustunni á Rafrænni Reykjavík og með skriflegri tilkynningu til forstöðumanns frístundaheimilisins.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í viðkomandi frístundamiðstöð eða hjá þjónustuveri Reykjavíkur í  síma 4111111. Starfsfólk frístundamiðstöva leitast við að sinna hlutverki sínu af kostgæfni en ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara er hægt að senda tölvupóst á sfs@reykjavik.is.

Gjaldskrá 2021 fyrir vetrarstarf frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva

Þjónusta

Mánaðaverð

Síðdegishressing

Samtals 

 Vistun 5 daga  14.490  4.185  18.675
 Vistun 4 daga  11.810  3.350  15.150
 Vistun 3 daga  9.120  2.510  11.630
 Vistun 2 daga  6.435  1.690  8.125
 Vistun 1 daga  3.735  855  4.590
 Lengd viðvera  2.175    


Ef þjónusta er nýtt kl. 8.00-13.40 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það sérstaklega (lengd viðvera). Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 13.40-17:00. Óskað er eftir skráningu á þessa daga á hverjum stað fyrir sig. Einnig er hægt að skrá þau börn eftir hádegi sem ekki eru skráð í vistun þann vikudag og greiða sérstaklega fyrir. Skráning á langa daga er bindandi og ekki er veittur systkinaafsláttur af viðbótarvistun þessa daga.

 

Systkinaafsláttur

Getum við bætt efni þessarar síðu?