Fara í efni

Fjöldahjálpastöð - Ásgarði

Nýverið var gengið frá því að stjórnsýsluhús Kjósarhrepps, Ásgarður, yrði það húsnæði innan sveitarfélagsins sem hægt væri að virkja sem fjöldahjálparstöð ef og þegar þyrfti.  Ásgarður uppfyllir öll þau skilyrði sem gerð eru til slíkra stöðva. 

Rauði krossinn óskaði eftir fjöldahjálparstöð í sveitarfélaginu m.a. í ljósi aukinnar umferðar og ferðamannastraums um svæðið.  

Fjöldahjálpastöð í Ásgarði

 F.v.: Hrönn Pétursdóttir formaður RKÍ-Mosfellsbæ afhendir Sigríði Klöru gögn frá RKÍ til að hafa í Ásgarði .
Þeim til fulltingis eru Atli Ö Konráðs Gunnarsson og Sigurður Pétur Harðarson úr neyðarvarnarhópi RKÍ í Mosfellsbæ

Fjöldahjálparstöðvar falla undir starfsemi almannavarna á Íslandi og er ákvörðun um það að opna stöðvarnar tekin af almannavarnarnefnd þegar veður, náttúruhamfarir eða slys gera það að verkum að koma þarf fólki í skjól eða aðstoða það í nauð. Það er mismunandi hversu oft slíkar stöðvar eru opnaðar, sumar aldrei eða á margra ára fresti en einstaka – eins og á Kjalarnesi – allt að fimm sinnum á ári. 

Rekstur þessara stöðva er í höndum Rauða krossins.  Sem hluti af almannavarnarkerfinu þá hefur félagið umsjón með fjöldahjálp og sálfélagslegum stuðningi þegar náttúruhamfarir og aðrir alvarlegir atburðir eiga sér stað, auk þess að veita áfallahjálp í kjölfar vinnuslysa, hópslysa og annarra alvarlegra atburða.  Þá er þolendum húsbruna veitt fyrsta aðstoð á vettvangi, svo sem þak yfir höfuðið, mat og aðrar brýnustu nauðsynjar.  Þessi þjónusta er veitt án endurgjalds og af þjálfuðum sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir til aðstoðar, hvenær sem kallið kemur.

Undanfarin ár hefur Rauði krossinn á Íslandi séð um rekstur fjöldahjálparstöðvanna á höfuðborgarsvæðinu en haustið 2018 tók deild Rauða krossins í Mosfellsbæ verkefnið yfir á sínu starfssvæði en það nær til Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósar. 

Getum við bætt efni þessarar síðu?