Fara í efni

Folaldasýning Adams- úrslit

Deila frétt:

 

 

Langbestu folaldasýningu ársins í Kjósinni er lokið. Dómarnir voru alveg svellkaldir, enda undir frostmarki í Boganum, eitthvað sem bjórinn þoldi mun betur en áhorfendur.  Þeir sem ekki skoluðu gómsætum Adamsborgurum niður með einhverju frostþolnu,  borðuðu gosið með. Þorvaldur Kristjánsson, master í kynbótafræðum ásamt ýmsu fleiru, sá um að vega og meta folöldin, og naut hann aðstoðar og visku Magnúsar Benediktssonar hins athafnasama.  Í þetta sinn voru skráð 18 folöld, og voru metin bæði að byggingu og hæfileikum. Sýndu sum mjög flott tilþrif, sum flottari en önnur, sum ekki svo og önnur alls ekki.

Verðlaunin voru glæsileg;  bikarar, verðlauna peningar, stytta og ekki síst bækurnar; Hrossaræktin og Stóðhestar 2013, sem Hrossaræktin ehf.  gaf félaginu.

Sigurvegari í flokki hestfolalda var hinn léttbyggði og lofthái Borgfjörð frá Morastöðum. Sýndi sá mikinn fótaburð og fór mest um á feiknaflottu brokki. Í flokki merfolalda sigraði hin bráðmyndalega Rauðhetta frá Þúfu í Kjós. Sú sýndi mikla mýkt, rými og mikinn fótaburð, ekki síst á tölti.  Að lokum völdu dómarar glæsilegasta folald sýningarinnar, og fyrir valinu varð Rauðhetta, sem fyrr er getið.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Hestfolöld:

 

1.      Borgfjörð frá MorastöðumIS2013125097

       M: Marta frá Morastöðum.

F: Vörður frá Sturlureykjum 2.

Eigandi og ræktandi: María Dóra Þórarinsdóttir.

2.      Mikkael frá Flekkudal.

Móðir: Lögg frá Flekkudal

Faðir: Stáli frá Kjarri

Ræktandi og eigandi: Guðný Ívarsdóttir

3.       Sprettur frá HlíðarásiIS2013125696

Faðir :Kvistur frá Skagaströnd

Móðir: Náma frá Kílhrauni

Ræktandi og eigandi: Óðinn Elísson.

4.       Kári frá MorastöðumIS2013125095 jarpur

M: Kolbrá frá Litladal

F: Kvistur frá Skagastönd.

Eigandi og ræktandi: María Dóra Þórarinsdóttir

               5.  Grásteinn frá Flekkudal.

Móðir: Hauðna frá Reykjavík

               Faðir: Hrói frá Flekkudal

Ræktandi og eigandi: Sigurður Guðmundsson

 

Merfolöld:

1.       IS2013225435 Rauðhetta frá Þúfu í Kjós

M: Þyrnirós frá Þúfu í Kjós

F: Herkúles frá Ragnheiðarstöðum.

Eigandi og ræktandi: Guðríður og Björn  á Þúfu í Kjós

2.      Venus frá Þúfu í Kjós

M: Folda frá Þúfu í Kjós.

F: Desert frá Litlalandi.

Eigandi og ræktandi: Guðríður Gunnarsdóttir á Þúfu í Kjós

3.      Fjöður frá Hlíðarási

F: Seiður frá Flugumýri

               M: Vera frá Hafsteinsstöðum

               Eigandi og ræktandi: Óðinn Elísson.

4.      Lifun frá Flekkudal.

M: Æsa frá Flekkudal

       F:  Stáli frá Kjarri

              Ræktandi og eigandi: Guðný Ívarsdóttir

5.      Eign frá Miðdal

F: Freyðir frá Leysingjastöðum ll

              M: Taug frá Miðdal.

               Eigandi og ræktandi: Svanborg A. Magnúsdóttir