Fara í efni

Ásgarður opinn á Kátt í kjós

Deila frétt:

 Myndin Liljur vallarins eftir Þorstein Jónsson verður sýnd kl. 13 og kl 15 í Ásgarði, en sögusvið myndarinnar er Kjósin. Í myndinni er tekist á við stóru spurningarnar - um Guð, tilgang lífsins og dyggðirnar. Þorsteinn mun svara fyrirspurnum eftir sýninguna kl, 13.

Kjósarmyndin frá 1952 verður svo sýnd kl. 16.30.

Einnig verða í Ásgarði til sölu gamlar bækur úr bókasafni hreppsins og kostar hver bók kr. 100.-

Hægt verður að skoða gamlar myndir frá skólaárunum í  Ásgarði.

Kvenfélagið verður með kaffi og kleinur til sölu.

Opið verður í Ásgarði frá kl.13 til 17.