Auglýsing um kjörskrár vegna forsetakosninga
13.06.2016
Deila frétt:
Kjörskrár vegna kjörs forseta Íslands laugardaginn 25. júní 2016 munu liggja frammi á skrifstofum Kjósarhrepps frá og með miðvikudeginum 15. júní 2016 á almennum skrifstofutíma til kjördags.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta nú kannað á vefnum www.kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær til hreppsnefndar Kjósarhrepps.