Fara í efni

Bændafundur í Kaffi Kjós í kvöld, 29. nóvember

Deila frétt:

Almennur haustfundur Bændasamtakanna verður í kvöld, mánudaginn 29. nóvember í Kaffi Kjós og hefst kl. 20:30. Á fundinum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfærin liggja.

Framsögumenn verða stjórnarmenn BÍ ásamt ýmsum starfsmönnum samstakanna.

Nýgerður búnaðarlagasamningur verður til umfjöllunar og spurt verður hvernig unnt er að verja kjör bænda í erfiðu efnahagsástandi. Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, segir í leiðara í nýju Bændablaði að meginerindi á bændafundum sé að heyra hvernig félagsmenn BÍ vilji beita sínum samtökum. Hann hvetur jafnframt alla bændur til að mæta því á bændafundum gefist kostur á að láta í sér heyra og hlusta á aðra.