Bókakynning á bókasafnskvöldi í Ásgarði miðvikudagskvöld 21. desember kl 20.
19.12.2011
Deila frétt:
Bókasafnið verður opið miðvikudagskvöldið kl 20-22. Þá koma og kynna nýjar bækur sínar þeir Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri og Sigurður Sigurðsson dýralæknir.
Bjarni segir í bók sinni sögur um Farmall-dráttarvélar og fleiri tæki frá International Harvester og frá hlut þeirra í framvindu landbúnaðar og þjóðlífs á Íslandi og heldur þar með áfram að skrá þróun vélvæðingar íslenskra sveita á síðustu öld með þeim einstaka hætti sem menn kynntust í bók hans um Ferguson dráttarvélarnar.
Bók Sigurðar er ævisaga og ber einfaldlega heitið Sigurður dýralæknir. Þar segir Sigurður á sinn skemmtilega hátt frá mönnum, skepnum og málefnum.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og jólastemmingu. Kjósarstofa verður opin þar sem verður hægt að versla bækur og handverk og skoða ljósmyndasýningu.