Bókasafnið í Ásgarði-spilakvöld
15.04.2014
Deila frétt:
Bókasafnið verður opið á miðvikudagskvöldið 16. apríl frá kl. 20:00-22:00.
Stefnt verður að því að spila félagsvist um kl 20:30 ef næg þátttaka fæst.
Páskaegg er í verðlaun fyrir stigahæstu konuna og stigahæsta karlinn. Skammarverðlaun verða veitt og einnig verðlaun handa þeim er situr lengst við sama borðið.
Heitt verður á könnunni og meðlæti að hætti bókaverjunnar.