Fasteignagjöld 2014
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Kjósarhreppi 2014 verða sendir til íbúa og fasteignaeigenda í lok febrúar. Fasteignagjöld verða innheimt í gegnum heimabanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðla. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum og hafa þá samband við skrifstofu Kjósarhrepps sem fyrst.
Gjalddagar verða fimm, 1. mars, 1. maí, 1. júlí, 1. september og 1. nóvember. Ekki verður skipt niður gjaldi undir kr. 20.000.- Eindagi er mánuði seinna.
Eftir eindaga tekur innheimtufyrirtækið Momentum við innheimtu fasteignagjaldanna fyrir hreppinn og getur það haft aukinn kostnað í för með sér.
Athugið, að þau fasteignagjöld fyrir árið 2013 sem enn verða ógreidd 1. mars 2014 verða í framhaldinu send til innheimtuþjónustu eins og undanfarin ár.
Kjósarhreppur hefur samþykkt reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og má skoða þær reglur á kjos.is, birtar sem fylgiskjal síðustu fundargerðar hreppsnefndar einnig undir „Samþykktir og gjaldskrár“.
Fjárhagsáætlun Kjósarhrepps fyrir árið 2014 má skoða á heimasíðunni undir „Skýrslur og útgefið efni“ Ákveðið var meðal annars í áæluninni, að fara í viðhald á girðingum meðfram Hvalfjarðarvegi inn að Brynjudal, girðingunum umhverfis skógræktina á Möðruvöllum 1 og viðhald húsa á Möðruvöllum 1 (málun, annað) og fleira sem til gæti fallið. Kjósarhrepp vantar starfskraft sem er tilbúinn að taka að sér þessa vinnu og þarf viðkomandi helst að getað byrjað á henni í vor. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við undirritaða í s. 5667100 eða á netfangið oddviti@kjos.is
Á næsta bókasafnskvöldi, miðvikudaginn 12. febrúar er stefnt að Rauði Krossin verði með endurlífgunarnámskeið fyrir íbúa Kjósarhrepp frá kl 20-22.