Frá Vindáshlíð
24.05.2012
Deila frétt:
Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í Kjós, sunnudaginn 3. júní kl. 14.00-18.00. Boðið verður að vanda upp á girnilegt kaffihlaðborð. Verð kr. 1500 fyrir 14 ára og eldri og 750 kr. fyrir 6-13 ára. Kaffisalan hefst með guðsþjónustu kl. 14.00 í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð og mun sr. Íris Kristjánsdóttir messa. Hægt er að skoða staðinn að utan sem innan, kanna íþróttahúsið, taka jafnvel brennóleik eða skoða göngustíga og rjóður í grenndinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.