Fara í efni

Fræðslufundur með Sigurði Torfa járningameistara með meiru.

Deila frétt:
Hestamannafélagið Adam í Kjós, stendur fyrir fræðslufundi með Sigurði Torfa járningameistara, fimmtudaginn 30. Jan. Kl. 20 í Ásgarði í Kjós. Sigurður Torfi er einn alklárasti járningamaður landsins, og heill hafsjór af fróðleik um járningar, hreyfingar og fótaheilbrigði hesta. Adam hvetur félagsmenn sem aðra að nýta tækifærið til að hlíða á og spyrja meistarann spjörunum úr, eða þannig. Aðgangseyrir aðeins kr. 1000. Kaffiveitingar.
Stjórn Adams.