Framhald á reiðvegagerð
Hestamannafélagið Adam heldur nú áfram reiðvegagerð um okkar ástsælu sveit. Ákveðið hefur verið að næsti reiðvegaleggur verði lagður frá Felli að Eilífsdal. Töluverð umferð ríðandi manna er um umræddan veg og slysahætta mikil vegna vaxandi umferðar um veginn. Búið er að ræða við landeigendur. Allir hafa þeir tekið þessu framtaki mjög vel og sumir gefið góðfúslegt leyfi fyrir efnistöku í reiðveginn, þannig að stutt verður að fara með efni í veginn.
Stefnt er á að fara í þessa framkvæmd fyrstu og aðra helgina í október. Adam hvetur sveitunga sem hafa tæki og tól, dráttarvél og eða sturtuvagn, að taka þátt í þessari framkvæmd. Adam stefnir á að hægt verði að ríða sem víðast um Kjósinna á reiðvegum en ekki akvegum. Reiðvegir um Kjósina gera mannlífið skemmtilegra og fasteignir verðmeiri ef sá póllinn er tekinn í hæðina. Vinnum saman, nú er það gamli Drengs ungmannafélagsandinn sem gildir .o)
Adam greiðir fyrir olíu á vélarnar og býður upp á ljúffengar veitingar. Fyrsta mæting er laugardaginn 2. október kl. 09 hjá Bjarna í Litlu-Þúfu. Nánari upplýsingar gefa Pétur í s: 893-1791 og Bjössi í s: 895-7745.
Stjórn Adams