Fara í efni

Hrútasýning og lambaskoðun 2011

Deila frétt:

Sameiginleg hrútasýning fyrir Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós verður haldin að  Kiðafelli,  sunnudaginn 2. okt. og hefst klukkan 14.00. Þar gefst bændum kostur á að fá  stiguð og ómmæld lömb og veturgamla hrúta.

Þeir sem hafa hug á að nýta sér þessa þjónustu Búnaðarsamtaka Vesturlands eru beðnir að hafa samband við Guðmund í síma 896-6832.

Um kl 16,00, fer fram verðlaunaafhending fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt  allir eru velkomnir til að vera viðstaddir og þiggja kaffiveitingar.

Líkt og i fyrra  verður verðlaunað sérstaklega fyrir stigahæsta mislita lambhrútinn.

Sýningin er jafnframt vettvangur til að verða sér út um gripi til kynbóta.

 

Sauðfjárræktarfélagið Kjós