Kjósarhreppur og Mosfellsbær eitt þjónustusvæði vegna þjónustu við fatlað fólk
Guðmundur Davíðsson, oddviti Kjósarhrepps og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafa ritað undir samkomulag um að Mosfellsbær og Kjós sé eitt þjónustusvæði fyrir fólk með fötlun.
Á myndinni eru f.v Guðný G Ívarsdóttir framkvæmdastjóri Kjósarhrepps, Guðmundur Davíðsson oddviti Kjósarhrepps, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar hefur því tekið að sér að veita íbúum og félagsmálanefnd Kjósarhrepps félagsþjónustu og aðra lögbundna félagslega þjónustu - þar á meðal þjónustu við fólk með fötlun, sem færðist yfir til sveitarfélaganna frá ríkinu um síðustu áramót.
Starfsmenn fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar annast verkefni félagsþjónustu fyrir Kjósarhrepp undir stjórn framkvæmdastjóra þess. Helstu verkefni eru félagsleg ráðgjöf, móttaka og úrvinnsla umsókna um fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónusta og húsaleigubætur.