Kjörsókn í Kjósarhreppi
13.04.2011
Deila frétt:
Kjörsókn í Kjósarhreppi vegna kosninga um Icesave samningana var samkvæmt áræðanlegum heimildum 83% og má það teljast gott.
Margir stöldruðu við og þáðu veitingar sem voru í boði sveitarfélagsins og Kvenfélag Kjósarhrepps sá um. En það er orðinn fastur liður þegar kosið er í Kjósarhreppi að boðið er upp á kaffi og með því á kjördag og líkar íbúum það vel.