Krásir í Kjósinni 8. október
Laugardaginn 8. október verður haldin í Félagsgarði matarhátíðin Krásir í
Kjósinni.
Kjósarstofa stendur að hátíðinni en þar munu matreiðslumeistararnir Ólöf Jakobsdóttir og Jakob H. Magnússon töfra fram krásir úr hráefni beint frá býlum. Kl. 19 verður sérstök kynning á nýjasta „landnemanum í Kjós“, grjótkrabba, sem Halldór Pálmar Halldórsson líffræðingur sér um. Framleiðendur í Kjós munu jafnframt kynna framleiðsluvörur sínar og leyfa gestum að smakka. Borðhald hefst kl. 20 og mun kvöldverðurinn kosta kr. 6.500, án drykkja.
Borðapantanir óskast sendar á netfangið kjosarstofa@kjos.is. Veislustjórn verður í höndum Sólveigar Ólafsdóttur sagnfræðings, en helsta rannsóknarsvið Sólveigar hefur síðustu ár verið matarhefðir og matarmenning á Íslandi.