Landsmót UMFÍ 50+ í Mosfellsbæ í sumar
Heilir og sælir kæru Kjósverjar – hestamenn og aðrir íþróttamenn 50 ára og eldri
Helgina 8. – 10. júní verður haldið 2. Landsmót UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ.
Á mótinu verður keppt í hestaíþróttum: fjórgangi, fimmgangi og tölti. Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti og senda þessar upplýsingar á sem flesta.
Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða frítt á fyrirlestrar, kynningar á íþróttagreinum, hóptímar í m.a. sundleikfimi, Zumba og línudansi. Einnig verður boðið upp á heilsufarsmælingar og fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða.
Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasambands Kjalarnesþings og Ungmennafélags Íslands í samstarfi við Mosfellsbæ og Heilsuvin.
Keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, badminton, blak, boccia, bridds, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, knattspyrna, kraftlyftingar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, strandblak, sund, sýningar og þríþraut. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins hvort sem þeir eru í félagi eða ekki. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast þar með þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda. Frítt verður á tjaldstæði mótshelgina í Mosfellsbæfellsbæ. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is.
Aðstaða til keppni í hestaíþróttum er öll til fyrirmyndar í Mosfellsbæ ásamt annarri íþróttaaðstöðu.
Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ helgina 8. – 10. júní 2012 kát og hress .
h.f. Adam
Björn Ólafsson