Nýrri háspennulínu Landnets hf hafnað
Landsnet hf. hefur sent Hreppsnefnd Kjósarhrepps erindi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi til að hægt verði að byggja 400 kv raforkulínu í gegnum hreppinn. Fyrirhuguð lína á að liggja frá Geithálsi að Grundartanga og lega hennar á að vera samsíða núverandi 220 kv. Ný fyrirhuguð lína er háð umhverfismati, er fyrirferðameiri og hefur meira helgunarsvæði en núverandi lína. Hún mun stóraukna flutningsgetu til að mæta aukinni eftirspurn eftir raforku til iðnaðaruppbyggingu á Grundartanga.
Hreppsnefnd Kjósarhrepps fjallaði um erindið á fundi þann 2. febrúar og gerði eftirfarandi samþykkt:
“Hreppsnefnd Kjósarhrepps hafnar alfarið hugmyndum Landnets hf. um stækkun og aukinnar flutningsgetu háspennulínu sem fer í um sveitarfélagið að Grundartanga í Hvalfirði. Hreppsnefnd er alfarið á móti aukni mengandi iðnaðaruppbyggingu í firðinum og telur að starfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum og fasteignaeigendum í Kjósarhreppi ómældu tjóni og telur það algjört forgangsverkefni að draga úr umhverfisáhrifum þegar starfandi iðnfyrirtækja á Grundartanga”.
Er þessi afgreiðsla í samræmi við inntak Aðalskipulags Kjósarhrepps en fram kemur í formála þess að ekki er gert ráð fyrir þéttbýli, stóriðju né uppbyggingu
háspennumastra. Þá er ræktun með tilstuðlan líftækni óheimil, jafnframt er stórfellt
fiskeldi og skipulagslaus uppdæling malarefna úr Hvalfirði hvoru tveggja forboðið.