Opnun ljósmyndasýningar og erindi um búorku
Á laugardag var opnuð í Ásgarði sýning á ljósmyndum sem eru afrakstur námskeiðs á vegum Kjósarstofu sem haldið var í sumar þar sem Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari og Ólafur Oddsson voru leiðbeinendur. Viðfangsefni námskeiðsins var náttúra og saga Kjósarinnar. Sýninguna má skoða á skrifstofutíma hreppsins virka daga.
Eftir opninuna hélt Kristján Hlynur Ingólfsson fróðlegt erindi um framleiðslu á gasi í sveitum, en meistararitgerð hans í umhverfis- og auðlindafræði ber heitið Búorka og er þar miðlað þekkingu á lífgasvinnslu. Í kjölfar hækkandi verðs á jarðefnaeldsneyti hefur orðið vakning í því að auka innlenda framleiðslu metans. Kristján Hlynur rakkosti þess að setja upp einfalda gasframleiðslu fyrir ver sem samnýtir úrgang frá nokkrum býlum og ræddi um kosti og galla þess að hafa gasframleiðslu á stökum býlum. Miklar umræður spunnust um möguleika Kjósverja til orkuframleiðslu til heimanotkunar. Skoða má ritgerð Kristjáns á vefnum skemman.is. Kynning á verkefninu liggur frammi í Ásgarði.