Ruslakar horfið frá Félagsgarði
14.09.2011
Deila frétt:
Ruslakar sem á að vera við Félagsgarð er horfið og er það mjög bagalegt fyrir þá starfsemi sem þar er í gangi. Rusl fýkur þar nú um allt.
Þeir aðilar sem tóku það ófrjálsri hendi eru vinsamlegast beðnir um að skila því aftur á sinn stað nú þegar.
Ef einhverjir geta gefið upplýsingar um hvar það gæti verið staðsett nú, eru þeir vinsamlegast beðnir um að láta skrifstofu Kjósarhrepps vita.