Sögufélagið Steini kynnir:
10.11.2010
Deila frétt:
„Þjóðlega sögustund“,með kaffi og heimabakstri, laugardaginn 20. nóvember kl. 16 – 18 í Klébergsskóla á Kjalarnesi. Í framhaldi af degi íslenskrar tungu 16. nóvember, er þema stundarinnar;
þjóðskáldið Matthías Jochumsson, en 175 ár er frá fæðingardegi hans, 11. nóvember 1835 og 90 ár frá dánardegi hans 18. nóvember 1920. „Matti í Móum“ var prestur hér á Kjalarnesi árin 1866 – 1873.
Við fáum góða gesti:
- Þórunni Erlu og Valdimarsdóttur, sagnfræðing og rithöfund, sem m.a. er höfundur verðlaunabókarinnar „Upp á Sigurhæðir“ um ævisögu Matthíasar. Hún nefnir erindi sitt: „Matthías Jochumsson – Einn frægasti nábúi Esju.“
- Jón Júlíusson leikari les upp ljóð eftir Matthías og þau Geirlaug Þorvaldsdóttir leiklesa úr Skugga-Sveini.
- Nemendur úr Klébergsskólaflytja tónlistaratriði.
- Sr. Gunnar Kristjánsson flytur erindi sitt: „Maður á mörkum. Um Móaár séra Matthíasar Jochumssonar.“
Aðgangseyrir kr 1000 fyrir fullorðna.
Upplýsingar hjá Hrefnu í s. 6592876/ hsb3@hi.is