Fara í efni

Skötuveisla í Félagsgarði á Þorláksmessu 2014, Kl. 13:00

Deila frétt:

 

Hin árlega skötuveisla Kjósarinnar verður í Félagsgarði á Þorláksmessu, þriðjudaginn 23. desember kl. 13.  Að þessu sinni er það Veisluhúsið ehf, nýr rekstraraðili í Félagsgarði, sem sér um veisluna með styrk frá Kjósarhreppi.

Boðið verður upp á vel kæsta skötu, tindabikkju og saltfisk með tilheyrandi fitu og floti ásamt meðlæti s.s. heimabökuðu rúgbrauði, smjöri, kartöflum, rófum o.þ.h.

Aðgangseyrir er 1.500 kr á mann fyrir hlaðborðið. 
Greitt er við innganginn, posi á staðnum og barinn opinn.

Vinsamlega virðið að tilkynna þarf þátttöku þannig að örugglega verði nóg handa öllum.

Tekið er á móti pöntunum til hádegis mánudaginn 22. desember í símum: 772 3285 (Sunníva), 823 6123 (Syrrý) og 566 7100 (Skrifstofa Kjósarhrepps). 
Einnig er hægt að panta á netfangið: felagsgardur@gmail.com