Umhverfisvöktun iðjuveranna á Grundartanga
12.04.2011
Deila frétt:
Niðurstöður flúormælinga í kjálkum sauðfjár vegna umhverfisvöktunar í Hvalfirði fyrir árið 2010 liggja fyrir. Uppsprettu flúors má fyrst og fremst rekja til álversins á Grundartanga þó aðrir þættir geti haft þar áhrif. Marktæk hækkun hefur orði frá því álverið tók til starfa en samkvæmt umhverfisvöktunarskýrslu fyrir árið 2010 hefur ekki orðið marktæk breytingar frá 2007. Flúor safnast upp í beinum grasbíta og hefur því tilhneigingu til að aukast með hækkun aldurs. Á sjö bæjum mældist meðalstyrkur flúors í beinösku kinda yfir mörkum þar sem talin er hætta á tannskemmdum og að meðaltali reyndust öll sýnin frá bæjunum 12 sem rannsakað er frá vera talsvert yfir þessum mörkum. Sýni úr sláturlömbum eru hinsvegar vel undir mörkum.
sh