Fara í efni

Aðalafundur Hestamannafélagsins Adams

Deila frétt:

Aðalfundur Hestamannafélagsins Adams verður haldinn í Ásgarði í Kjós, sunnudaginn 23. febrúar kl. 20:00. 

Dagskrá :

  1. Setning fundar
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Lesin upp nöfn þeirra sem óskað hafa inngöngu í félagið og leitað samþykkis fundarins
  4. Skýrsla stjórnar – formaður leggur fram skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári
  5. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  6. Umræður um skýrslu og reikninga
  7. Formaður reiðveganefndar leggur fram skýrslu um starf nefndarinnar á liðnu ári og áætlanir fram undan
  8. Lagabreytingar – tillaga að lagabreytingu lögð fram til samþykktar eða synjunar. Samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að lagabreyting nái fram að ganga
  9. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
  10. Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta starfsár
  11. Veiting ræktunarverðlauna
  12. Önnur mál
  13. Fundarslit

Tillögur að lagabreytingum verða kynntar á fundinum. Helstu breytingar lúta að breytingum á dagsetningu aðalfundar. Tillögurnar er hægt að nálgast hja formanni félagsins.

Við hvetjum félagsmenn eindregið til að mæta, taka þátt í umræðum og hafa áhrif á starf félagsins — þátttaka ykkar skiptir okkur máli.

Virðingarfyllst,
Stjórn Hestamannafélagsins Adams