Fara í efni

Aðalfundur Veiðifélags Kjósarhrepps

Deila frétt:

Stjórn Veiðifélagsins:

Hreiðar,Guðmundur, Ólafur Þór,Sgurþór og Guðbrandur

Aðalfundur Veiðifélags Kjósarhrepps 2008 var haldinn fimmtudaginn 15. maí.

Í skýrslu formanns félagsins, Ólafs Þórs Ólafssonar kom fram að engum seiðum verðum sleppt í árnar í vor, því allur klakfiskur slapp fyrir tveimur árum. Gert er ráð fyrir að seiðum verði sleppt í ánna sumarið 2009. Sumarið 2007 veiddust 623 laxar í Laxá og var hluti þeirra var sleppt. Í Bugðu veiddust 123 laxar og var þeim öllum sleppt. Á vatnasvæðinu veiddust 194 sjóbirtingar. Veiðin var samkvæmt þessum tölum með allra minnsta móti, enda tíðafar einstaklega óhagstætt vegna langvarandi þurrka. Gerður hefur verið leigusamningur við LAX ehf. um veiðirétt í Meðalfellsvatni, jafnframt um  veiðihúsið utan hefðbundins veiðitíma. Kjörin byggja á hlutaskiptum af brúttó leigu- og matsölutekjum.

Lögð var fram nýtingaráætlun fyrir vatnasvæði félagsins. Sigurþór Gíslason lagði fram breytingatillögu sem hann taldi vera í betra samræmi við lögin sem áætlunin byggir á og var hún samþykkt  með smávægilegum breytingum sem komu fram á fundinum Um er að ræða hámarks-nýtingaráætlun og gerir hún ráð fyrir að stjórn félagsins í samvinnu leigutaka ákveði nánari tilhögun veiða innan marka hennar.

Undir liðnum önnur mál vakti Finnur Pétursson máls á reglum varðandi efnistöku í Laxá og Bugðu. Taldi hann mikilvægt að menn sameinuðustu um verklagsreglur varðandi umsóknir sem hafa áhrif á vatnasvæðið og lagði áherslu á að landeigendur væru að selja ákveðin verðmæti og því yrði að ganga um þau þannig að sátt ríki.