Fara í efni

Aðalsafnaðarfundur Reynivallasóknar

Deila frétt:
Reynivellir og prestssetrið
Reynivellir og prestssetrið

Fundarboð: Aðalsafnaðarfundur Reynivallasóknar

Hér með boðar sóknarnefnd til aðalsafnaðarfundar Reynivallasóknar í Ásgarði, sunnudagskvöldið 28. júní 2020

Dagskrá fundarins:

1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
2. Afgreiðsla reikninga sóknar og kirkjugarðs fyrir sl. ár, ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.
3. Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi.
4. Ákvörðun um meiriháttar framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar.
      a.  Farið yfir stöðuna á byggingu þjónustuhúss.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna/endurskoðanda sóknar og kirkjugarðs og varamanna þeirra til árs í senn.
6. [Kosning í sóknarnefnd ]. Hvorki þarf að kjósa aðalmenn né varamenn í sóknarnefnd þetta árið, 
     (kosið er annað hvert ár til 4ra ára og enginn að ganga úr stjórn núna). 
7. [Kosning í kjörnefnd Reynivallasóknar]. Ekki þarf að kjósa í kjörnefnd þetta árið.
8. Önnur mál

F.h. Sóknarnefndar Reynivallasóknar
Sigríður Klara Árnadóttir formaður, Unnur Sigfúsdóttir gjaldkeri og Hulda Þorsteinsdóttir ritari.
Varamenn: Finnur Pétursson, Sigurþór Ingi Sigurðsson og Ruth Rúnarsdóttir.
Sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur