Fara í efni

Aðventukvöld í Reynivallakirkju 8. des, kl. 20

Deila frétt:

Aðventukvöld verður í Reynivallakirkju á öðrum sunnudegi í aðventu, 8. desember nk, kl. 20:00.
Sigríður Klara Árnadóttir formaður sóknarnefndar flytur upphafs ávarp og Sigurbjörn Magnússon frá Kiðafelli flytur hátíðarræðu.

Börn úr Kjósinni ganga inn í kirkjuna með aðventuljósið og tendra á fyrsta aðventuljósinu.

Kirkjukór Reynivallaprestakalls syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organista.
 
Boðið verður upp á notalega stund við aðventukrans og kertaljós.
Heitt súkkulaði og piparkökur í kirkjunni.
 
Verið velkomin til kirkju.

Kærleikskveðja
Sóknarprestur og sóknarnefnd