Aðventumarkaður í Félagsgarði - 12. desember
Laugardaginn 12. desember verður hinn árlegi aðventumarkaður Kjósarinnar haldinn
í Félagsgarði í Kjós, frá kl. 12-17
Prentvæna auglýsingu um markaðinn er hægt að nálagst HÉR
Bókin Ungmennafélagið Drengur - 100 ára saga, verður til sölu ásamt hinni einu sönnu Kjósarmynd, sem margir hafa beðið eftir. Hraðbanki á staðnum.
Snorri og Sveina verða með safaríkar jólasteikur, forrétti og dásamlegt meðlæti frá kjötvinnslunni sinni, Sogni Holdanautakjöt
Lilli og Begga verða með sitt landsfræga Kiðafells tvíreykt hangikjöt
Örn hjá BullArt verður með sína fallegu handsmíðuðu skargripi úr nautabeinum sem gera menn hamingjusama.
Sigga á Bakka verður með hönnun sína SG Textil, Eva í Eilífsdal verður með kertin sín og Heimshornið verður með úrval af fallegri gjafavöru. Betty brosmilda mætir með öll sín Fínindi og Erna með allt vel merkt frá Allt merkilegt .
Smári kokkur lumar á góðum mataruppskriftum. Rosmary heldur áfram að safna fyrir skólastarfi í Kenýja og mun sýna myndir af starfi þeira hjá TEARS CHILDREN
Kvenfélag Kjósarhrepps sér um veitingasölu þar sem allur ágóði rennur til líknarmála. Nýverið gáfu þær 300 þúsund krónur til Bleiku slaufunnar, sem var ágóði veitingasölunnar í sumar á Kátt í Kjós.
Þetta og margt fleira verður að finna í Félagsgarði laugardaginn 12. des.
Að markaði loknum verður hægt að glöggva sig aðeins á aðventunni á Veður-barnum, á neðri hæðinni í Félagsgarði.
Þetta árið ætlar hún NaNa að bjóða heim í fallega bústaðinn sinn, Ásbyrgi við Meðalfellsvatn, Flekkudalsvegi 18 á laugardeginum 12. des milli kl. 12 og 17. Ekki veitir af að fá sér fallegt skinn til að hlýja sér í kuldanum hjá Gallerí Nana.
Kaffi Kjós verður opið um helgina frá kl. 12-18
Skógræktarfélag Kjósarhrepps verður með sölu á jólatrjám inn að Fossá í Hvalfirði í samvinnu við skógræktarfélag Kjalarness, Mosfellsbæjar og Kópavogs. Hægt verður að ná sér í jólatré allar helgar til jóla, frá kl. 10-15:30. Fyrsti söludagur er laugardagur 5. des og sá síðasti sunnudagur 20. des. Þeir pakka inn trjánum í net og lána sagir, en mæla samt með að gestir noti sína eigin góðu sög ef til er. Tekið er á móti hópum og það er salerni á svæðinu upp við gamla bæinn að Fossá, sem verður opinn sem afdrep.
Tilvalinn fjölskyldudagur í sveitinni þann 12. des, byrja á að ná sér í sitt eigið jólatré, kíkja við á markaðinum, kaupa restina af jólagjöfunum og slaka síðan á yfir bolla af heitu súkkulaði með rjóðar kinnar. Renna svo við hjá Gallerý NaNa og enda á Kaffi Kjós til að snæða kvöldmatinn.
![]() |
||

