Fara í efni

Álagning fasteignagjalda 2026

Deila frétt:

Álagningu fasteignagjalda 2026 fyrir Kjósarhrepp er nú lokið og greiðsluseðlar fyrsta gjalddaga komnir í heimabanka.  Í samræmi við lög nr. 4/1995 birtast álagningarseðlar gjaldendum nú eingöngu rafrænt á Mínum síðum inná island.is.  Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða með veflykli ríkisskattstjóra. Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast í heimabanka greiðanda en ekki er hægt að dreifa greiðslum á greiðslukort.

Gjalddagar fasteignagjalda eru níu á ári frá 1. mars – 1. nóvember, eindagi 30 dögum síðar. Sé heildar fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 40.000.- eru þau gjaldfelld í einu lagi þann 1. mars.

 

Heimild til álagningar fasteignagjalda:

a) Allt að 0,5% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.

b) 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.

c) Allt að 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu..

Sveitastjórn er heimilt að hækka álagningu í a og c lið um allt að 25%.

Sveitarstjórn samþykkir að álögð fasteignagjöld í Kjósarhreppi 2026 verði með eftirfarandi hætti:

a) 0,28 % af fasteignamati húss og lóðar

b) 1,32 % af fasteignamati húss og lóðar

c) 0,85 % af fasteignamati húss og lóðar

Afsláttur til elli- og örorkuþega

Tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar fasteignaskatts miðast við tekjur á árinu 2024 og eru þær sóttar vélrænt á vef ríkisskattstjóra í gegnum álagningakerfi Fasteignaskrár Íslands (HMS). Ekki er þörf á sérstökum umsóknum vegna afsláttar.

Tekjumörk vegna útreiknings afsláttar 2026 eru eftirfarandi:

Einstaklingar

100% afsláttur: Einstaklingur með tekjur allt að kr. 7.704.999.-

75% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu kr. 7.705.000 – 8.115.999.-

50% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu kr. 8.116.000 – 8.553.999.-

25% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu kr. 8.554.000 - 9.017.999.-

Tekjur samskattaðra einstaklinga

100% afsláttur: Hjón/fólk í skráðri sambúð með tekjur allt að kr. 9.715.999.-

75% afsláttur: Hjón/fólk í skráðri sambúð með tekjur á bilinu kr. 9.716.000 - 10.250.999.-

50% afsláttur: Hjón/fólk í skráðri sambúð með tekjur á bilinu kr. 10.251.000 – 10.820.999.-

25% afsláttur: Hjón/fólk í skráðri sambúð með tekjur á bilinu 10.821.000 - 11.421.999.-

 

Vakin er athygli á að gjaldendur fasteignagjalda eru í samræmi við eignahlut fasteignar. Mögulegt er að skrá eina kennitölu sem 100% greiðanda gjaldanna. Einnig er hægt að greiða gjöldin í einu lagi, í stað þess að dreifa þeim á 9 mánuði.  Óskir um breytingar á gjöldtöku sendist á kjos@kjos.is

Nánari upplýsingar veitir Berglind B.H. Aspelund, aðalbókari Kjósarhrepps í netfanginu kjos@kjos.is

 

Sveitarstjóri