Álit HMS á matsáætlun um Magnesíumverksmiðju á Grundartanga
Fjölmargar og veigamiklar athugasemdir hafa verið gerðar við fyrirhugaða magnesíumverksmiðju á Grundartanga, samkvæmt áliti Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um matsáætlun verkefnisins.
Verksmiðjan, sem er á vegum Njarðar Holding ehf., á að framleiða allt að 50.000 tonn af magnesíum á ári úr sjó og sem aukafurð 150.000 tonn af klór á ári. Umsagnir frá fjölda stofnana og sérfræðinga benda þó til þess að veruleg óvissa sé um umhverfisáhrif og öryggi starfseminnar.
Áhyggjur af áhrifum á sjó og lífríki
Ein alvarlegasta gagnrýnin snýr að áhrifum verksmiðjunnar á sjó í Hvalfirði. Hafrannsóknastofnun telur að matsáætlunin geri ekki nægilega grein fyrir því hvernig affall frá verksmiðjunni muni dreifast og hafa áhrif á efnasamsetningu sjávar. Stofnunin bendir á að frárennslið verði efnafræðilega frábrugðið náttúrulegum sjó og geti haft áhrif á lífríki og efnajafnvægi.
Einnig er bent á að breytingar á efnasamsetningu gætu haft áhrif á getu sjávar til að binda koltvísýring, sem gæti haft loftslagsleg áhrif.
Óvissa um mengun og hættuleg efni
Fjöldi umsagnaraðila gerir athugasemdir við umfang og meðferð hættulegra efna í ferlinu. Um er að ræða stór magn efna eins og saltsýru, basa og vetnis.
Náttúrufræðistofnun Íslands bendir á að gera þurfi mun skýrari grein fyrir úrgangi, meðal annars kalsíumsamböndum sem safnast eiga í tjörn, og hvernig þeim verði fargað eða þau endurnýtt.
Vinnueftirlit ríkisins telur að starfsemin falli undir reglur um stórslysahættu og kallar eftir ítarlegu áhættumati vegna geymslu og notkunar hættulegra efna.
Spurningar um mengunarefni og eiturefn
Sérstakar áhyggjur hafa verið um mögulega myndun skaðlegra efna í framleiðsluferlinu.
Hafrannsóknastofnun kallar eftir frekari greiningu á því hvort díoxín eða önnur þrávirk lífræn efni geti myndast og hvernig verði komið í veg fyrir slíkt, auk þess sem krafist er skýrra upplýsinga um vöktun og losunarmörk.
Skortur á samanburði valkosta
HMS bendir einnig á að ekki sé nægilega vel gerð grein fyrir raunhæfum valkostum, svo sem mismunandi framleiðsluaðferðum eða umfangi starfseminnar. Slíkur samanburður sé lykilatriði til að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.
Krefjast frekari upplýsinga
Í áliti HMS er lögð rík áhersla á að í komandi umhverfismatsskýrslu verði:
-
gerð ítarleg grein fyrir allri efnanotkun og úrgangi
-
metin áhrif á sjó, lífríki og efnajafnvægi
-
framkvæmd líkanreiknings á dreifingu affalls
-
unnið heildstætt áhættumat vegna hættulegra efna
Álit stofnunarinnar er bindandi fyrir framkvæmdaraðila og þarf að liggja til grundvallar frekara mati á verkefninu.
'Alit HMS má lesa hér. Magnesíum verksmiðja á Grundattanga álit -HMS á matsáætlun