Fara í efni

Áríðandi tilkynning – tunnuskipti vegna samræmds flokkunarkerfis í Kjósinni hefjast í vor.

Deila frétt:

Áríðandi tilkynning – tunnuskipti vegna samræmds flokkunarkerfis í Kjósinni hefjast í vor.  

Eins og fram hefur komið mun á vormánuðum 2023 verða innleitt nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili.  

Tunnuskipti hefjast í vor – engar breytingar við heimili um áramót 

Nokkurs misskilnings hefur gætt meðal íbúa vegna þessa og hafa sumir talið að tunnuskipti muni hefjast strax í byrjun næsta árs. Hið rétta í málinu er hins vegar að breytingar á tunnum íbúa, ef einhverjar verða, hefjast í fyrsta lagi í vor. Íbúar í Kjósinni þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir þegar tunnuskiptin koma til framkvæmda næsta vor  þar sem almenna sorpið og lífræni úrgangurinn verður í einni tvískiptri tunnu, nema að vera dugleg að flokka. 

 

Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.    Meginmarkmið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við heimili.   

 

Þetta verður stórt framfaraskref í umhverfis- og loftslagsmálum en meðal annars munu öll heimili fá tunnu fyrir matarleifar.